- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Einar Bragi átti stórleik

- Auglýsing -

Einar Bragi Aðalsteinsson var í ham þegar IFK Kristinstad vann Malmö, 39:34, í fyrsta úrslitaleik liðanna um sænska meistaratitilinn í handknattleik karla í Kristinstad Arena. Einar Bragi skoraði 11 mörk í 14 skotum og var langmarkahæsti leikmaður IFK Kristinastad. Aðeins var eins marks munur var á liðunum í hálfleik, 17:16.


Næsti leikur liðanna fer fram í Malmö á laugardaginn og þar á eftir eigast þau við í Kristianstad Arena á þriðjudag. Vinna þarf þrjá leiki til að hreppa sænska meistaratitilinn.

Axel Månsson var næstmarkahæstur leikmanna IFK með átta mörk og William Höghielm skoraði sjö mörk.

Sænski landsliðsmaðurinn Nikola Roganovic var markahæstur leikmanna Malmö með 13 mörk.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -