- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Jón Brynjar kominn í þjálfarateymi Lugi

- Auglýsing -

Jón Brynjar Björnsson, fyrrverandi þjálfari kvennaliða Víkings og Aftureldingar, hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari sænska kvennaliðsins Lugi í Lundi. Jón Brynjar lét af störfum hjá Aftureldingu síðasta sumar og flutti til Svíþjóðar vegna framhaldsnáms eiginkonunnar. Jón Brynjar þjálfaði yngri flokka hjá Lugi í vetur og kom einnig að greiningarvinnu hjá meistaraflokksliðinu.

Lugi var lengi í úrvalsdeildinni en féll í Allsvenskan fyrir ári. Á nýliðinni leiktíð hafnaði liðið í þriðja sæti Allsvenskan, sjö stigum á eftir Ystads sem vann deildina. Allt verður lagt í sölurnar á næstu leiktíð til þess að endurheimta sæti í efstu deild.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -