Eftir að umspili um Evrópusæti á HM karla lauk í dag og forkeppni Norður-Ameríku í gær er víst hvaða 30 þjóðir taka þátt í heimsmeistaramóti karla sem haldið verður í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Aðeins tveimur sætum er óráðstafað. Þeim verður ráðstafað af framkvæmdastjórn Alþjóða handknattleikssambandsins skömmu áður en dregið verður í riðla fyrir HM 10. júní í München.
Þátttökuþjóðunum verður raðað niður í fjóra styrkleikaflokka sem dregið verður úr. Eftirtaldar þjóðir eru öruggar um sæti á HM karla 2027:
Gestgjafar: Þýskaland.
Heims- og Evrópumeistarar: Danmörk.
Suður- og Mið-Ameríka: Argentína, Brasilía, Chile, Úrúgvæ.
Asía: Barein, Katar, Kúveit, Japan.
Afríka: Alsír, Angóla, Egyptaland, Grænhöfðaeyjar, Túnis.
Frá EM 2026: Ísland, Króatía, Portúgal, Svíþjóð.
Norður-Ameríka: Bandaríkin.
Umspil Evrópu: Noregur, Færeyjar, Spánn, Grikkland, Pólland, Frakkland, Slóvenía, Serbía, Ítalía, Norður-Makedónía.
Tvö boðssæti – þær sem koma helst til greina: Ungverjaland, Bosnía, Tékkland, Sviss, Svartfjallaland, Ísrael, Holland, Tyrkland, Austurríki, Slóvakía.
Einnig: Grænland, Suður-Kórea.
Leikið verður í fjórum borgum í riðlakeppninni, tveir riðlar í hverri borg: München, Stuttgart, Magdeburg og Kiel. Íslenska landsliðið verður í riðli sem leikinn verður í Magdeburg.
Milliriðlar fara fram í Hannover og Köln. Forstebikarinn í Magdeburg. Allir leikir frá og með átta liða úrslitum verða leiknir í Köln.



