- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Donni og félagar unnu fyrstu orrustu undanúrslita

- Auglýsing -

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og liðsfélagar í Skanderborg AGF unnu fyrsta undanúrslitaleikinn við GOG í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld, 38:35, eftir framlengingu. Staðan var jöfn, 32:32, eftir hefðbundinn leiktíma.

Leikurinn var kaflaskiptur því GOG hafði fjögurra marka forskot að lokinni 30 mínútna viðureign, 19:15. Næst mætast liðin á heimavelli GOG á laugardaginn. Vinna þarf tvær viðureignir til að komast í úrslit.

Donni náði sér ekki á strik í leiknum. Hann skoraði ekki mark í fimm tilraunum en átti þrjár stoðsendingar. Emil Lærke var markahæstur með 10 mörk.


Efnilega örvhenta skyttan, Hjalte Lykke, var markahæstur hjá GOG með 10 mörk auk fjögurra stoðsendinga. Frederik Bjerre skoraði fimm mörk. Færeyingurinn Óli Mittún skoraði fjögur mörk og gaf fimm stoðsendingar.

Aalborg Håndbold vann Mors-Thy, 40:21, í fyrsta og mögulega fyrri leik liðanna í hinni viðureign undanúrslita. Staðan í hálfleik van 22:11.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -