- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Elín Klara og félagar unnu fyrsta úrslitaleikinn

- Auglýsing -

IK Sävehof vann fyrsta úrslitaleikinn um sænska meistaratitilinn í handknattleik kvenna á heimavelli í kvöld. IK Sävehof lagði Skara HF, 25:22, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik, 12:10. Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði fimm af mörkum IK Sävehof-liðsins sem sækir Skara HF heim á fimmtudaginn í annarri viðureign liðanna.

Elín Klara skoraði eitt marka sinna úr vítakasti. Hún gaf einnig þrjár stoðsendingar.


Lena Margrét Valdimarsdóttir, sem í sumar gengur til liðs við Fram, skoraði þrisvar fyrir Skara HF. Hún gaf auk þess fjórar stoðsendingar.

Markverðir liðanna, Isabella Mouratidou hjá Skara og Elin Lindblom í marki IK Sävehof, voru bestu leikmenn liðanna. Báðar voru þær með yfir 40% hlutfallsmarkvörslu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -