- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Þegar neyðin er stærst þá er hjálpin næst – Solberg er mætt í markið

- Auglýsing -

Silje Solberg, landsliðsmarkvörður Noregs, er mætt til leiks með danska liðinu Esbjerg, nokkrum mánuðum fyrr en til stóð. Hún átti að mæta til leiks í upphafi næstu leiktíðar. Sökum þess að tveir aðalmarkverðir Esbjerg, Anna Kristensen og Katharina Filter, eru meiddar, fékk Solberg neyðarkall frá stjórnendum Esbjerg. Svo vel vildi til að hún var í heimsókn hjá systur sinni, Sönnu Solberg-Isaksens sem einnig leikur með Esbjerg, þegar neyðarkallið barst. Þegar neyðin er stærst þá er hjálpin næst.  

Forsjálir forráðamenn

Solberg átti barn í október á síðasta ári og hefur ekki leikið handknattleik síðan norska meistaraliðið Vipers varð gjaldþrota í upphafi síðasta árs. Hún samdi hins vegar í vetur við Esbjerg um að koma til félagsins í upphafi næsta tímabils. Þar sem hún var ekki samningsbundin öðru liði voru forráðamenn Esbjerg svo forsjálir að ganga tilkynna Solberg í leikmannahóp sinn áður en lokað var fyrir félagaskipti í Danmörku 15. febrúar. Sú ákvörðun kemur sér vel nú þegar Kristensen og Filter eru úr leik.

Æfði í gær – leikur á fimmtudag

Solberg er sögð vera í góðu líkamlegu formi en sannarlega er hún ekki komin í leikform en mun örugglega fljótt komast í takt þar sem hún verður aðalmarkvörður Esbjerg-liðsins út leiktíðina. Hún æfði í fyrsta sinn með samherjum sínum í gær.

„Nú þarf ég að gíra mig upp andlega til að vera tilbúin fyrir mikilvæga leiki fyrir Team Esbjerg. Ég er í fínu lagi og við sjáum hvernig þetta fer,“ segir Solberg sem verður í eldlínunni strax á fimmtudaginn með Esbjerg þegar liðið mætir Ikast í annarri viðureign liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -