Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Orri Freyr markahæstur og með fullkomna nýtingu

Orri Freyr Þorkelsson var með fullkomna nýtingu í kvöld, átta mörk í átta skotum, þegar lið hans Elverum vann átjánda leikinn sinn í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Elverum vann Tønsberg Nøtterøy, 33:24, á útivelli eftir að hafa verið sjö...

Annar sigur Stjörnunnar í röð

Stjarnan vann annan leik sinn í röð í Olísdeild kvenna í kvöld er hún lagði HK með þriggja marka mun, 27:24, í TM-höllinni í Garðabæ. Stjarnan var með undirtökin í leiknum frá upphafi til enda og var einu marki...

Birna Berg heldur ótrauð áfram í Eyjum næstu ár

Landsliðskonan sterka, Birna Berg Haraldsdóttir, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild ÍBV. Þar með hafa fjórir öflugir leikmenn skrifað undir framlengingu á samningum sínum við ÍBV á síðustu dögum. Auk Birnu Berg eru það Sunna Jónsdóttir, Marta...

Stefnt á tvennu í KA-heimilinu og á Reykjavíkurslag í Framhúsinu

Í mörg horn er að líta hjá mótanefnd HSÍ um þessar mundir. Frá áramótum hefur hverjum leiknum á fætur öðru verið frestað, flestum vegna covid en öðrum vegna ófærðar. Um síðustu helgi stóð til KA og ÍBV mættust í...
- Auglýsing-

Getum vonandi hlegið að þessu eftir tíu til fimmtán ár

Arnar Daði Arnarsson þjálfari karlaliðs Gróttu segir það reyna mjög á leikmenn og þjálfara að halda sínu striki við þær aðstæður sem búið er við á meðan covid faraldurinn gengur yfir. Hvað eftir annað sé lagður undirbúningur í leiki...

Dagskráin: Toppslagnum slegið á frest

Í TM-höllinni í Garðabæ mætast í kvöld Stjarnan og HK í Olísdeild kvenna. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. Leiknum var frestað á dögunum vegna veirunnar en nú gefst tækifæri til þess að leikmenn liðanna reyni með sér. Uppfært kl....

Molakaffi: Gísli, Ómar, Bjarki, Alexander, Arnar, Elvar, Ágúst, Steinunn, Alonso, Sveinn

Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon ásamt félögum í SC Magdeburg mæta HC Erlangen í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar 23. apríl. Ekki liggur alveg fyrir hvaða lið mætast í hinni viðureign undanúrslitanna. Víst er þó að Kiel mætir annað...

Halda áfram að elta Nantes

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, skoraði þrjú mörk í fimm skotum og átti auk þess tvær stoðsendingar þegar lið hans PAUC vann nýliða Saran örugglega í frönsku 1. deildinni í handknattleik á heimavelli í kvöld, 32:26. Saranliðið, sem er næst neðsta...
- Auglýsing-

Var nánast eins og hryllingssaga,

„Það var bara ömurlegt að tapa leiknum,“ sagði Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Gróttu, eftir tveggja marka tap fyrir Fram í 14. umferð Olísdeildarinnar í handknattleik í Framhúsinu í kvöld. Við tapið dróst Gróttuliðið fimm stigum aftur úr Fram, KA...

Myndskeið: Íslenska Dananum er ýmislegt til lista lagt

Danska hornamanninum Hans Lindberg, sem er af íslensku bergi brotinn, er ýmislegt til lista lagt annað en vera afbrags hægri hornamaður og vítaskytta. Hann brá sér í stutta stund í mark Füchse Berlin í kvöld gegn Pfadi Winterthur í...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19003 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -