Í TM-höllinni í Garðabæ mætast í kvöld Stjarnan og HK í Olísdeild kvenna. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. Leiknum var frestað á dögunum vegna veirunnar en nú gefst tækifæri til þess að leikmenn liðanna reyni með sér.
Uppfært kl. 10.58:
Viðureign ÍR og Selfoss í Grill66-deild kvenna sem fram átti að fara í kvöld hefur verið frestað vegna covidsmita í herbúðum Selfossliðsins. Handbolti.is var að fá staðfestingu frá HSÍ um að leiknum hafi verið frestað.
Einnig verður einn leikur á dagskrá í Grill66-deild karla í kvöld. Ungmennalið Hauka og Selfoss mætast á Ásvöllum. Bæði lið hafa gert liðunum í efri hutanum skráveifu upp á síðkastið.
Olísdeild kvenna:
TM-höllin: Stjarnan – HK, kl. 19.30 – sýndur á Stjarnan handboltitv.
Stöðuna og næstu leiki í Olísdeild kenna má sjá hér.
Grill66-deild kvenna:
Austurberg: ÍR – Selfoss, kl. 19.30 – FRESTAÐ VEGNA COVIDSMITA!
Stöðuna og næstu leiki í Grill66-deild kvenna má sjá hér.
Grill66-deild karla:
Ásvellir: Haukar U – Selfoss U, kl. 20 – sýndur á Haukartv.
Stöðuna og næstu leiki í Grill66-deild karla má sjá hér.