- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Arnór Þór á meðal þeirra bestu

Arnór Þór Gunnarsson hornamaður Bergischer HC og íslenska landsliðsins var valinn í úrvalslið 26. umferðar í þýsku 1. deildinni í handknattleik en umferðinni lauk um helgina. Þetta er í fyrsta skiptið á leiktíðinni sem Arnór Þór er í liði...

„Auðvitað spenntur og stoltur“

„Ég er auðvitað bara spenntur og stoltur,“ sagði Elvar Ásgeirsson, nýbakaður landsliðsmaður í handknattleik karla og leikmaður franska B-deildarliðsins Nancy við handbolta.is. Elvar, sem á engan landsleik að baki, var valinn í íslenska 18-manna landsliðshópinn í gær. Fyrir...

Semur við Hörð til þriggja ára

Raivis Gorbunovs hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Handknattleiksdeild Harðar á Ísafirði en Harðar-liðið leikur í Grill 66-deildinni. Gorbunovs, sem nýverið var valinn í lettneska landsliðið, hefur verið lykilmaður á tímabilinu hjá Herði. Þessi 22 ára miðjumaður...

„Þetta er algjör bomba“

„Þetta er algjör bomba og um leið rós í hnappagat félagsins,“ sagði Arnór Atlason, aðstoðarþjálfari Aalborg Håndbold í samtali við handbolta.is um tíðindi dagsins að Aron Pálmarsson komi til félagsins í sumar frá Barcelona á þriggja ára samningi. „Það sýnir...
- Auglýsing-

Aalborg Håndbold staðfestir komu Arons í sumar – myndskeið

Danska meistaraliðið Aalborg Håndbold staðfesti í morgun fregnir sem láku út á laugardaginn um að Aron Pálmarsson gangi til liðs við félagið í sumar. Hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við danska liðið sem ætlar sér enn stærri...

Árar lagðar í bát í Noregi

Hætt hefur verið við úrslitakeppni í úrvalsdeildum karla og kvenna í Noregi. Elverum hefur verið útnefndur meistari í karlaflokki og er þá miðað við stöðuna eins og hún var þegar keppni var hálfnuð. Ekkert lið fellur úr úrvalsdeild karla...

Molakaffi: Meistari í fjórða sinn, Kanor og Zec úr leik, sagði nei við Alfreð en já við Jacobsen

Aron Pálmarsson og samherjar í Barcelona unnu enn einn leikinn í spænsku 1. deildinni með yfirburðum í gærkvöld er þeir lögðu Ángel Ximénez Genil, 37:21, á heimavelli, Palau Blaugrana. Aron skoraði eitt mark í leiknum í þremur skotum. Þetta...

Nína Líf heldur áfram á Nesinu

Nína Líf Ólafsdóttir hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Gróttu til næstu tveggja ára. Nína Líf, sem er 25 ára gömul, er á sínu öðru ári með Gróttu og er uppalin á Nesinu en hún gekk til liðs við Gróttu...
- Auglýsing-

Framtíðarmaður framlengir hjá FH

Miðjumaðurinn efnilegi, Einar Örn Sindrason, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild FH. Hann hefur skorað 38 mörk í 15 leikjum FH-inga í Olísdeildinni á leiktíðinni. „Við FH-ingar erum gríðarlega ánægðir með nýja samninginn við Einar Örn....

Fimm breytingar – þar af er einn nýliði í landsliðshópnum

Fimm leikmenn sem ekki hafa verið með í síðustu verkefnum íslenska karlalandsliðsins í handknattleik eru í 18 manna hópi sem Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari, valdi í dag til þátttöku í þremur síðustu leikjum landsliðsins í undankeppni EM í kringum...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. [email protected]
18585 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -