Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Döhler flytur á ný til Svíþjóðar

Þýski markvörðurinn Phil Döhler sem lék í fjögur ár við góðan orðstír með FH hefur samið við sænska úrvalsdeildarliðið Amo HK. Tekur samningurinn gildi í sumar og tekur til næstu þriggja ára, út leiktíðina í sumarbyrjun 2029. Döhler þekkir vel...

Uppselt á seinni landsleikinn við Svía

Uppselt er á síðari landsleik Íslands og Svíþjóðar í handknattleik karla sem fram fer á laugardaginn í Kaplakrika klukkan 17. Frá því greinir HSÍ í tilkynningu í kvöld. Enn eru til miðar á fyrri vináttulandsleikinn við Svía sem fer fram...

Jóhann Reynir hefur ákveðið að láta gott heita

Fyrirliði karlaliðs Víkings undanfarin ár, Jóhann Reynir Gunnlaugsson, hefur ákveðið að láta gott heita á handknattleiksvellinum eftir að hafa verið árum saman kjölfesta liðsins. Jóhann Reynir fékk blómvönd eftir síðasta heimaleik Víkings á keppnistímabilinu í síðustu viku auk þess...

Hópur efnilegra leikmanna var kallaður inn á æfingu landsliðsins

Nokkur hópur yngri leikmanna var kallaður inn á æfingu landsliðsins í handknattleik karla sem fram fór fyrir hádegið í Safamýri. Ástæða þess var m.a. sú að hluti landsliðshópsins var við kappleiki með félagsliðum í gær og tókst ekki að...
- Auglýsing-

Leiktíðinni lokið hjá Dönu Björgu vegna meiðsla

Dana Björg Guðmundsdóttir landsliðskona í handknattleik meiddist í leik með Volda í norsku 1. deildinni í gær. Útlit er fyrir að hún leiki ekki fleiri leiki á keppnistímabilinu með liðinu. Þar með verður hún ekki með íslenska landsliðinu í...

Staðfest leikjadagskrá Olísdeildar karla

Raðað hefur verið niður leikjum í úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik. Fyrstu leikirnir fara fram miðvikudaginn 25. mars. Annars vegar mætast deildarmeistarar Vals og HK og hins vegar ÍBV og KA. Daginn eftir eigast við fyrsta sinni FH og...

Molakaffi: Dana, Ísak, Sigvaldi, Benedikt, Elías, Sigurjón, Árni, Viktor

Dana Björg Guðmundsdóttir fyrirliði Volda skoraði þrjú mörk fyrir liðið í tíu marka sigri á Glassverket, 33:23, á útivelli í næst efstu deild norska handknattleiksins í gær. Volda færðist upp í 5. sæti deildarinnar og er tveimur stigum frá...

Orri Freyr var óstöðvandi í bikarsigri

Orri Freyr Þorkelsson landsliðsmaður í handknattleik átti enn einn stórleikinn með Sporting Lissabon í kvöld þegar liðið vann Belenenses, 46:28, á heimavelli í 8-liða úrslitum portúgölsku bikarkeppninnar í handknattleik. Orri Freyr skoraði 10 mörk og var markahæsti leikmaður vallarins. Bræðurnir...
- Auglýsing-

Magdeburg er áfram með örugga forystu eftir nauman sigur

SC Magdeburg heldur áfram öruggri forystu í þýsku 1. deildinni í handknattleik eftir nauman sigur á harðskeyttum leikmönnum Bergischer HC í Mitsubishi Electric Halle í Düsseldorf í dag, 27:25. Magdeburg hefur sjö stiga forskot í efsta sæti þegar níu...

Lena Margrét fer heim frá Skövde með silfurverðlaun

Lena Margrét Valdimarsdóttir og stöllur hennar í sænska liðinu Skara HF töpuðu fyrir Boden Handboll IF, í úrslitaleik sænsku bikarkeppninnar í dag, 33:32. Úrslit leiksins voru knúin fram í bráðabana með hraðaupphlaupum en jafnt var eftir 60 mínútna leik...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19013 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -