- Auglýsing -
Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði ekki mark fyrir Skara HF þegar liðið tapaði með eins marks mun á heimavelli, 26:25, í annarri umferð undanúrslita úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í gær. Lena Margrét gaf tvær stoðsendingar. Staðan er nú jöfn, hvort lið hefur einn vinning.
Næsti leikur liðanna fer fram í Gautaborg á laugardaginn. Vinna þarf þrjá leiki til þess að komast í úrslit.
IK Sävehof sækir H65 Höör heim í kvöld í annarri viðureign liðanna í hinni rimmu undanúrslita. Elín Klara Þorkelsdóttir og samherjar unnu fyrsta leikinn, 31:28, á heimavelli sínum.
- Auglýsing -



