- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Svavar og Sigurður sýndu rauða spjaldið í Flensborg

- Auglýsing -

Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson fengu nóg að gera er þeir dæmdu jafnteflisleik Flensburg og Hannover Brugdorf í GP Joule Arena í Flensburg í gær. Viðureignin var sú fyrri á milli liðanna í átta liða úrslitum Evrópudeildar karla. Niðurstaðan var jafntefli, 39:39, í afar hröðum leik. Flensburg var marki yfir í hálfleik, 20:19.

Svavar og Sigurður lyftu m.a. rauða spjaldinu á 56. mínútu leiksins þegar Niclas Kirkeløkke, leikmaður Flensburg, braut af sér.


Liðin mætast á ný í Hannover á þriðjudaginn. Samanlagður sigurvegari leikjanna tveggja öðlast sæti í undanúrslitum Evrópudeildarinnar.

Flensburg vann keppnina á síðasta ári og er mikið í mun að verja titilinn.

Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf.

Aðrir leikir í fyrri umferð Evrópudeildar voru háðir á þriðjudagskvöld.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -