- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Vonast til þess að fleiri banki á landsliðsdyrnar eftir Kaíróferðina

- Auglýsing -

„Breytingarnar eru fleiri en ég reiknaði með þegar ég fór að horfa fram til leikjanna við Egypta. Fyrst og fremst er það mín ákvörðun að gefa jafn mörgum leikmönnum frí frá leikjunum og raun ber vitni um,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson sem í gær valdi landsliðshóp sem mætir Egyptum í vináttulandsleikjum í Kaíró 13. og 15. maí.

Níu leikmenn sem tóku þátt í Evrópumótinu í janúar taka ekki þátt í leikjunum í Kaíró. Björgvin Páll Gústavsson markvörður Vals, Andri Már Rúnarsson leikmaður HC Erlangen, Elvar Örn Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon leikmenn Magdeburg, Viggó Kristjánsson hjá HC Erlangen, Elliði Snær Viðarsson hjá Gummersbach, Ýmir Örn Gíslason fyrirliði Göppingen og Janus Daði Smárason leikstjórnandi Pick Szeged.

„Ég veit alveg hvar þessir menn standa og hvers ég get ætlast til af þeim,“ segir Snorri Steinn.


Snorri Steinn segir að í flestum tilfellum sé um að ræða ákvörðun sína að gefa mönnum tækifæri til að einbeita sér að lokasprettinum með félagsliðum sínum. Einnig spili inn í meiðsli og hnjask sem hrjái menn.

Snorri Steinn landsliðsþjálfari ræðir við Gísla Þorgeir Kristjánsson sem er einn þeirra sem fær frí frá landsliðinu þegar kemur að ferðinni til Kaíró í næsta mánuði. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Ef einhverntímann, þá núna

„Ef það er einhvern tímann tækifæri til þess að hvíla menn frá landsliðinu og gefa öðrum tækifæri þá er það núna. Næstu fjögur til fimm skipti sem við komum saman á eftir Egyptalandsverkefnið verða meira krefjandi með undankeppni EM og þátttöku í HM. Þá leikur maður sér ekkert með hópinn heldur velur þann sterkasta sem mögulegur er hverju sinni til þess að ná sem hagstæðustu úrslitum.

Bjarki Már Elísson og Óðinn Þór Ríkharðsson eru í Kaíróhópnum. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Þrír nýliðar í Kaíróhópnum – margir reyndir verða ekki með

Ekkert leyndarmál

„Sömu sögu er að segja um Björgvin Pál eins og aðra þá sem fá pásu frá landsliðinu að þessu sinni. Ég veit hvað hann stendur fyrir og í hvaða hlutverki ég vil hafa hann. Hins vegar er það ekkert leyndarmál að við erum að leita að markvörðum til framtíðar. Þess vegna valdi ég Jón Þórarin Þorsteinsson og Ísak Steinsson. Sá síðarnefndi var valinn fyrir leikina við Svía í mars en meiddist og gat ekki tekið þátt í leikjunum.

Ég hef verið að líta í kringum mig eftir fleiri markvörðum. Ágúst Elí Björgvinsson var með okkur í haust. Einar Baldvin Baldvinsson tók þátt í æfingum í janúar og Breki Hrafn Árnason var með okkur í verkefnum í mars. Ég hef ekki lokað dyrum að einum né neinum en mig langar bara að sjá sem flesta því við verðum að horfa til framtíðar,“ segir Snorri Steinn um valið á markvörðunum tveimur til viðbótar við Viktor Gísla Hallgrímsson.

Þrír nýliðar eru í landsliðshópnum: Jón Bjarni Ólafsson línumaður FH, Jón Þórarinn Þorsteinsson markvörður FH og Tryggvi Þórisson línumaður Elverum. 
Meðal annarra leikmanna sem valdir voru í landsliðshópinn að þessu sinni en hafa verið fastagestir síðustu ár eru Einar Bragi Aðalsteinsson leikmaður IFK Kristianstad, Elvar Ásgeirsson leikmaður Ribe-Esbjerg, Ísak Steinsson markvörður Drammen HK og Kristján Örn Kristjánsson, Donni, leikmaður Skanderborg AGF.

Vonast til að stækka hópinn

Snorri Steinn segist ekki fara í grafgötur með að hann vilji hafa þá tilfinningu eftir leikina í Kaíró að einhverjir þeirra leikmanna sem kallaðir eru inn í hópinn nú af þeim sem lítið eða ekkert hafa komið við sögu áður skilji eftir sig þau spor að hann telji að þeir geti styrkt landsliðið á HM í janúar á næsta ári.

Mosfellingarnir Elvar Ásgeirsson og Þorsteinn Leó Gunnarsson hittast í Kaíró. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Banka vonandi hressilega á dyrnar

„Þeim mun fleiri, þeim mun betra. Vonandi banka sem flestir svo hressilega á landsliðsdyrnar að ég hafi meiri hausverk þegar ég vel næsta HM hóp en ég hafði þegar EM hópurinn var valinn í desember. Leikirnir í Egyptalandi eru svo sannarlega fyrir menn til þess að stimpla sig inn,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -