Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir markvörður Stjörnunnar sá til þess að hið gamla vígi kvennahandknattleiksins, Stjarnan, héldi áfram þátttöku í efstu deild kvenna í handknattleik á næstu leiktíð. Hún fór hamförum í marki liðsins í kvöld og reið baggamuninn í tveggja marka sigri Stjörnunnar í oddaleik liðsins við Gróttu í umspili Olísdeildar kvenna, 25:23. Grótta var sex mörkum yfir í hálfleik, 16:10, en missti niður þráðinn í síðari hálfleik af tveimur ástæðum.
Annars vegar var það stórleikur Hrafnhildar Önnu og hins vegar það áfall sem Grótta varð fyrir á fjórðu mínútu síðari hálfleiks þegar Ída Margrét Stefánsdóttir, burðarás liðsins, fékk sína þriðju brottvísun í leiknum. Ídu Margréti varð það á að stíga aðeins of fljótt inn á leikvöllinn eftir að hafa setið af sér aðra tveggja mínútna brottvísun. Á næstu 10 mínútum skoraði Stjarnan sjö mörk gegn einu frá Gróttu. Skömmu síðar komst Stjarnan yfir og náði að hanga eins og hundur á roði á forskotinu til leiksloka, ekki síst vegna áframhaldandi stórleiks Hrafnhildar Önnu.
Annað árið í röð hangir Stjarnan uppi í Olísdeildinni eftir umspil. Jafnljós er að Snorrabúð er orðin stekkur.
Mörk Stjörnunnar: Inga Maria Roysdóttir 6, Natasja Hammer 5, Aníta Björk Valgeirsdóttir 4/4, Vigdís Arna Hjartardóttir 4, Eva Björk Davíðsdóttir 3, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 2, Hanna Guðrún Hauksdóttir 1.
Varin skot: Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 17, 63% – Margrét Einarsdóttir 1, 7,7%.
Mörk Gróttu: Katrín S. Scheving Thorsteinsson 7, Ída Margrét Stefánsdóttir 5, Þóra María Sigurjónsdóttir 4, Lilja Hrund Stefánsdóttir 2, Elísabet Ása Einarsdóttir 2, Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir 2, Guðrún Þorláksdóttir 1.
Varin skot: Andrea Gunnlaugsdóttir 12/1, 32,4%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



