Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Elmar fór meiddur af velli – segulómskoðun á mánudag

Elmar Erlingsson handknattleiksmaður hjá Nordhorn-Lingen fékk þungt högg á vinstri síðuna undir lok fyrri hálfleiks viðureignar liðsins við Vfl Potsdam í næstefstu deild þýska handknattleiksins í gærkvöld. Kom hann ekkert meira við sögu í leiknum. Við skoðun hjá lækni...

Dagskráin: Þráðurinn tekinn upp eftir þriggja vikna hlé

Eftir þriggja vikna hlé á keppni í Olísdeild kvenna verður þráðurinn tekinn upp í dag með fjórum viðureignum í 19. og þriðju síðustu umferð.Olísdeild kvenna, 19. umferð:Kuehne+Nagel höllin: Haukar - ÍBV, kl. 13.Sethöllin: Selfoss - Stjarnan, kl. 14.N1-höllin: Valur...

Úrslitaleikur hjá Arnóri í lokaumferðinni

Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði fimm mörk og leikmenn Amo HK risu upp á afturfæturna og lögðu HF Karlskrona, 39:34, í Karlskrona í gærkvöld í næstsíðustu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar. Sigurinn nægir Amo-ingum ekki til þess að komast áfram í átta...

Molakaffi: Stiven, Sveinn, Elmar, Tjörvi, Tumi, Tryggvi

Stiven Tobar Valencia og samherjar í Benfica komust í átta liða úrslit portúgölsku bikarkeppninnar í gærkvöld. Þeir lögðu Carvalhos, 36:28, á útivelli. Stiven Tobar skoraði þrjú mörk. Sveinn Jóhannsson skoraði þrjú mörk og var einu sinni vikið af leikvelli í...
- Auglýsing-

Mikilvægt stig hjá Ísaki og Guðmundi Braga

Guðmundur Bragi Ástþórsson og Ísak Gústafsson skoruðu þrjú mörk hvor þegar TMS Ringsted gerði jafntefli við Skjern, 35:35, á heimavelli Skjern í gærkvöld í 24. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar. Ringsted jafnaði metin á síðustu stundu og átti Guðmundur Bragi stoðsendinguna...

Fjölnir og Fram 2 unnu sínar viðureignir

Fjölnir lagði Aftureldingu, 26:24, í þriðju síðustu umferð Grill 66-deildar kvenna í handknattleik er liðin mættust í Myntkaup-höllinni að Varmá í kvöld. Aftureldingarliðið situr á botni deildarinnar með 11 stig. Fram 2 sem var á sömu slóðum og Aftureldingarliðið...

Katla María og liðsfélagar komnar upp í úrvalsdeild

Katla María Magnúsdóttir og stöllur í Holstebro Håndbold tryggðu sér í kvöld sæti í dönsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Holstbro vann Ejstrup/Hærvejen, 35:30, í Snede-Hallen á Jótlandi. Þar með hefur Holstebro sex stiga forskot á Ajax þegar tvær umferðir...

Gummersbach færðist upp í 4. sæti með sigri í Kassel

Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, færðist upp í fjórða sæti þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í kvöld eftir sjö marka sigur á MT Melsungen, 31:24, í Kassel í kvöld. Gummersbach fór stigi upp fyrir Lemgo og THW Kiel...
- Auglýsing-

FH gerði Gróttu skráveifu

FH gerði Gróttu skráveifu í toppbaráttu Grill 66-deildar kvenna í handknattleik í kvöld. Skráveifu sem getur reynst Gróttuliðinu slæm í kapphlaupinu við HK um efsta sæti deildarinnar á endasprettinum. FH vann viðureignina við Gróttu með einu marki, 25:24. Thelma...

„Týpískt vinnuslys hjá markvörðum“

„Ég verð mætt aftur á völlinn áður en fólk nær að sakna mín of mikið,“ sagði Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals og íslenska landsliðsins í handknattleik, við handbolta.is fyrr í dag þegar forvitnast var um heilsufar hennar í kjölfar hálsmeiðsla...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19015 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -