- Auglýsing -
Hafþór Már Vignisson hefur framlengt samning sinn við Þór til næstu tveggja ára eftir því sem fram kemur í tilkynningu handknattleiksdeildar félagsins í dag. Hafþór Már er einn af uppöldum leikmönnum félagsins. Hann gekk á ný til liðs við Þór fyrir tveimur árum eftir að hafa spreytt sig hjá Stjörnunni, Empor Rostock í Þýskalandi og ØIF Arendal í Noregi.
Hafþór Már var einn mikilvægasti leikmaður Þórs á síðustu leiktíð en talsverður hluti sóknarleiksins var borinn upp af honum. Það var því skarð fyrir skildi hjá Þór í þeim sex leikjum sem Hafþór Már missti af á síðustu leiktíð. Hann skoraði 70 mörk og gaf 89 stoðsendingar í 16 leikjum Olísdeildar.
- Auglýsing -



