Með miklum endaspretti tókst Lenu Margréti Valdimarsdóttur og samherjum í Skara HF að vinna Önnereds, 25:24, í fyrsta undanúrslitaleik liðanna í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í dag. Lena Margrét skoraði fjögur mörk og gaf fjórar stoðsendingar. Næsti leikur liðanna fer fram í Skara á miðvikudaginn. Vinna þarf þrjá leiki til þess að komast í úrslit.
Önnereds var lengi vel með yfirhöndina í leiknum. Í hálfleik var forskot liðsins þrjú mörk, 14:11. Áfram var Önnreds með yfirhöndina tíu mínútum fyrir leikslok. Heimaliðið stóðst ekki áhlaup Skara-liðsins á síðustu tíu mínútunum.
Á morgun mætast IK Sävehof og H65 Höör í fyrsta sinn í hinni rimmu undanúrslita. Elín Klara Þorkelsdóttir leikur með IK Sävehof.


