- Auglýsing -
Íslendingaliðið Alpla Hard tapaði fyrir Förthof UHK Krems í úrslitaleik austurrísku bikarkeppninnar í handknattleik karla í gærkvöld, 24:21. Krems var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 14:12. Leikið var í Sport Arena Wien.
Tumi Steinn Rúnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Alpla Hard í úrslitaleiknum. Eitt markanna skoraði hann úr vítakasti. Tryggvi Garðar Jónsson skoraði ekki mark í leiknum.
Hannes Jón Jónsson er þjálfari Alpla Hard út leiktíðina.
Alpla Hard hafnaði í öðru sæti austurrísku deildarkeppninnar sem lauk á dögunum og mætir Aon Fivers í átta liða úrslitum. Fyrsti leikur liðanna fer fram í Bregenz á föstudaginn.
Íslendingatríóið leikur til úrslita í bikarnum
- Auglýsing -



