Tumi Steinn Rúnarsson og liðsfélagar í Alpla Hard mæta Krems í úrslitaleik austurrísku bikarkeppninnar í handknattleik á morgun. Alpla Hard vann Handball Tirol, 32:27, í undanúrslitaleik í dag. Krems vann Hollabrunn, 33:19, í hinni viðureign undanúrslita.
Tumi Steinn var markahæstur hjá Alpla Hard með sjö mörk ásamt Matthias Hild. Tryggvi Garðar Jónsson skoraði ekki mark fyrir Hard en var harður í horn að taka í vörninni með þeim afleiðingum að honum var tvisvar vikið af leikvelli. Tuma Steini var einu sinni vikið af leikvelli.
Hannes Jón Jónsson er þjálfari Alpla Hard.
Staðan var 16:14 fyrir Alpla Hard í hálfleik. Staðan var jöfn, 21:21, sextán mínútum fyrir leikslok. Hard skoraði þá þrjú mörk í röð og leit aldrei um öxl eftir það.



