Oddaleikur verður á milli Stjörnunnar og Gróttu um keppnisrétt í Olísdeild kvenna í handknattleik. Stjarnan jafnaði metin í úrslitum liðanna í umspilinu í dag með stórsigri í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi, 36:24, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik, 15:13. Úrslitaleikur liðanna fer fram í Hekluhöllinni í Garðabæ á miðvikudagskvöld og hefst klukkan 19.30.
Hvort lið hefur tvo vinninga. Svo merkilega hefur hist á að hvorugt liðanna hefur unnið leik á heimavelli í þessari úrslitarimmu.
Grótta byrjaði afar vel í leiknum í dag og skoraði þrjú fyrstu mörkin. Stjarnan lét það ekki slá sig út af laginu heldur svaraði fyrir sig og komst yfir, 5:4. Eftir það komst Grótta ekki yfir í viðureigninni. Stjarnan var sterkari í fyrri hálfleik og hafði verðskuldað forskot í hálfleik, 15:13, ekki síst fyrir stórleik Margrétar Einarsdóttur markvarðar.
Leikurinn var í jafnvægi á upphafsmínútum síðari hálfleiks. Fljótlega fór sóknarleikur Gróttu í handaskol. Leikmenn Stjörnunnar nýttu sér það til hins ítrasta með mörkum eftir hraðaupphlaup og í autt mark Gróttu. Munurinn fór úr 18:18 í 30:18 fyrir Stjörnuna, á 12 til 13 mínútna kafla. Þar með voru úrslitin ráðin í Hertzhöllinni.
Mörk Gróttu: Ída Margrét Stefánsdóttir 7, Elísabet Ása Einarsdóttir 3, Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir 3, Lilja Hrund Stefánsdóttir 3, Þóra María Sigurjónsdóttir 3, Edda Sigurðardóttir 1, Edda Steingrímsdóttir 1, Guðrún Þorláksdóttir 1, Hrafnhildur Hekla Grímsdóttir 1, Katrín S Scheving Thorsteinsson 1.
Varin skot: Andrea Gunnlaugsdóttir 3, Anna Karólína Ingadóttir 2.
Mörk Stjörnunnar: Aníta Björk Valgeirsdóttir 6, Natasja Hammer 6, Vigdís Arna Hjartardóttir 6, Eva Björk Davíðsdóttir 5, Hanna Guðrún Hauksdóttir 5, Inga María Roysdóttir 4, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 2, Margrét Einarsdóttir 1, Þóra Hrafnkelsdóttir 1.
Varin skot: Margrét Einarsdóttir 14, Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 4.



