- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Rúnar vann uppgjör Þórsaranna

- Auglýsing -

Rúnar Sigtryggsson hafði betur er hann mætti fyrrverandi samherja sínum og lærisveini úr Þór Akureyri, Arnóri Þór Gunnarssyni, í þýsku 1. deildinni. Þórsararnir þjálfara sitt hvort liðið. Rúnar er við stjórnvölin hjá Wetzlar sem lagði Bergischer-liðið sem Arnór Þór þjálfar við annan mann, 33:29, á heimavelli í 29. umferð þýsku 1. deildarinnar.


Með sigrinum færðist upp úr öðru fallsætana og upp í þriðja neðsta sæti deildarinnar með 13 stig eftir 29 leiki. Liðið er stigi fyrir ofan GWD Minden og tveimur stigum á undan Leipzig sem rekur lestina. Bergischer HC, sem lék til úrslita í þýsku bikarkeppninni fyrir viku, er tveimur stigum fyrir ofan Wetzlar með 15 stig. Liðið fjögur eru líklegust til þess að berjast um að forðast fall úr deildinni á endasprettinum. Fimm umferðir eru eftir óleiknar í þýsku 1. deildinni.

Staðan var jöfn eftir fyrri hálfleik í dag, 15:15. Wetzlar-liðið var síðan nokkru sterkara í síðari hálfleik. Bergicher náði ekki áhlaupi undir lokin til þess að hleypa viðureigninni í uppnám.
Josip Simic var markahæstur leikmanna Wetzlar með níu mörk. Noah Beyer og Fynn Hangstein voru markahæstir hjá Bergischer með átta mörk hvor.


Staðan í þýsku 1. deildinni:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -