- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Molakaffi: Emelía Dögg, Kasahara, Georgievski, Mina, Kukucka

Emelía Dögg Sigmarsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við handknattleiksdeild Víkings og verður því með liðinu á komandi tímabili. Emelía er 32 ára markmaður sem kom til Víkings árið 2020 en þar á undan spilaði hún með KA/Þór, HK...

Harðarmaður til æfinga hjá Berlínarrefunum

Lettinn Endijs Kusners og leikmaður nýliða Olísdeildar karla í handknattleik, Harðar á Ísafirði, verður við æfingar hjá þýska 1. deildarliðinu Füchse Berlin frá 17. til 20. júlí. Frá þessu er sagt á Facebook-síðu Harðar þar sem bréf á fleiri...

U20: Ná íslensku piltarnir fram hefndum gegn þeim ítölsku?

Íslenska landsliðið í handknattleik karla, skipað leikmönnum 20 ára og yngri leikur við Ítalíu um 11. sætið á Evrópumeistaramótinu í handknattleik karla á morgun. Um leið verður barist um síðasta lausa sætið á heimsmeistaramóti 21 árs landsliða sem fram...
- Auglýsing -

U20: Tap eftir vítakeppni í Porto

Íslensku piltarnir í U20 ára landsliðinu í handknattleik karla leika um 11. sætið á Evrópumótinu í Porto á morgun eftir sárt tap fyrir Slóvenum, 37:35, eftir vítakeppni í krossspili um sæti níu til tólf á mótinu í dag. Ísland...

Afturelding sækir liðsstyrk

Handknattleikskonan Katrín Erla Kjartansdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Aftureldingu og mun spila með liðinu í Grill66-deildinni á næsta keppnistímabili. Félagið segir frá komu hennar í morgun. Katrín Erla er uppalin í Fylki en hefur leikið með meistaraflokki...

Flytur heim eftir ár hjá Bergsøy

Handknattleiksþjálfarinn Lárus Gunnarsson sagði starfi sínu lausu hjá norska liðinu Bergsøy IL Handball í Bergsøy. Tók uppsögnin gildi um síðustu mánaðarmót eftir því sem fram kemur í tilkynningu formanns deildarinnar. Í tilkynningunni segir að Lárusi hafi borist atvinnutilboð frá Íslandi...
- Auglýsing -

Molakaffi: Geir verður bæjarstjóri, hagnaður hjá Skjern, Piroch, Bokhan

Nýr meirihluti í Hveragerði leggur til á næsta bæjarstjórnarfundi að Geir Sveinsson fyrrverandi landsliðsþjálfari í handknattleik og fyrirliði landsliðsins til margra ára, verði ráðinn næsti bæjarstjóri í Hveragerði. Frá þessu var sagt á heimsíðu bæjarins í gær. Ríflega 20...

U20: Erum staðráðnir í að ná sæti á HM

„Slóvenar eru með hrikalega öflugt lið. Af þeim sökum er í mörg horn að líta fyrir okkur við undirbúninginn fyrir viðureignina við þá á morgun,“ sagði Einar Andri Einarsson annar af þjálfurum U20 ára landsliðs karla í samtali við...

Handknattleiksmenn fara á Ólympíuhátíðina í Slóvakíu

ÍSÍ hefur staðfest keppnishóp Íslands sem tekur þátt í Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Banská Bystrica í Slóvakíu sem stendur yfir frá 24. til 30. júlí. Þar á meðal er 17 ára landslið Íslands í handknattleik karla sem tekur þátt í...
- Auglýsing -

U20: Leiktímar síðustu leikjanna liggja fyrir

Viðureign Íslands og Slóveníu í krosspili um níunda til tólfta sæti á Evrópumeistaramótinu í handknattleik hefst klukkan 16 á föstudaginn. Handknattleikssamband Evrópu gaf loksins út staðfesta leiktíma seint í gærkvöld. Það fer síðan eftir hvernig gengur í leiknum á...

Molakaffi: Gísli, Ómar, Haukur, Afríkukeppnin, Casado, Malašinskas

Þýskalandsmeistarar Magdeburg taka þátt í heimsmeistaramóti félagsliða á vegum alþjóða handknattleikssambandsins sem fram fer í annað sinn í Sádi Arabíu eftir miðjan október en liðið á titil að verja. Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon verða þar í...

U20: Færeyingar keyrðu yfir Pólverja

Færeysku piltarnir í U20 ára landsliðinu gefa ekkert eftir á Evrópumeistaramótinu í handknattleik í Porto. Þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu Pólverja örugglega í lokaleik sínum í milliriðlakeppni liðanna í neðri hluta mótsins, 38:32. Pólverjar fengu ekki rönd...
- Auglýsing -

U20: Íslensku piltarnir tóku Króata í kennslustund

Annan daginn í röð vann íslenska landsliðið, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, 13 marka sigur á Evrópumótinu í handknattleik karla i Porto. Í dag tóku íslensku piltarnir þá króatísku í karphúsið. Lokatölur, 33:20, eftir að sex marka munur...

Molakaffi: Óvænt hjá Gíneu, Háfra, Micijevic, herða reglur, Capdeville, Galia

Óvænt úrslit voru í Afríkukeppni karla í handknattleik í Kaíró í gær þegar annar leikdagur fór fram. Gínea, sem tekur nú þátt í keppninni í þriðja sinn, vann Alsír, 28:22, og gæti þar með blandað sér í baráttuna um...

Arna og Rut sagðar leggjast á árarnar með Andra Snæ

Rut Arnfjörð Jónsdóttir og Arna Valgerður Erlingsdóttir hafa verið ráðnar aðstoðarþjálfarar handknattleiksliðs KA/Þórs. Munu þær eiga að létta undir með Andra Snæ Stefánssyni þjálfara á næsta keppnistímabili. Frá þessu greinir Akureyri.net í kvöld samkvæmt heimildum. Andri Snær er að hefja...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -