Fram vann nauman sigur á HK, 25:24, í hörkuskemmtilegum leik í Olísdeild kvenna í handknattleik í 1.umferð deildarinnar í íþróttahúsi Fram í kvöld. Fram var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 14:10, en sigurinn stóð tæpt í lokin þar sem...
Stjarnan vann þægilegan sigur á nýliðum FH, 29:21, í upphafsleik Olísdeildar kvenna í handknattleik í TM-höllinni í Garðabæ í kvöld. Heimaliðið var með yfirhöndina í leiknum nánast frá upphafi og lét nýliðana ekki þvælast mjög fyrir sér.Stjarnan var fjórum...
Haukur Þrastarson tók þátt í sínum fyrsta kappleik með pólska meistaraliðinu Vive Kilce í dag þegar liðið mætti Szczerin á heimavelli og vann öruggan 15 marka sigur, 37:22, í annarri umferð pólsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik.Haukur skoraði ekki mark í...
Ingvar Guðjónsson og Sigurjón Þórðarson verða í eldlínunni í TM-höllinni í kvöld þegar þeir dæma upphafsleik Olísdeildar kvenna í handknattleik á milli Stjörnunnar og FH. Þeir ætla að flauta til leiks klukkuan 17.45. Reynir Stefánsson, formaður dómaranefndar HSÍ, ...
Flautað verður til leiks í Olísdeild kvenna í kvöld með tveimur leikjum þar sem Stjarnan tekur á móti FH annarsvegar í TM-höllinni klukkan 17.45 og hinsvegar mætast þrefaldir meistarar Fram og HK í Framhúsinu klukkan 18.30. Óhætt er að...
Óhætt er að segja að keppni í Olísdeild karla hafi farið vel af stað í gærkvöld með þremur leikjum. Af þeim voru tveir afar spennandi þar sem úrslit réðust ekki fyrr en á síðustu sekúndum. Nýliðarnir, Grótta og Þór Akureyri,...
Talið er að í uppsiglingu sé ein jafnasta og um leið skemmtilegasta keppni sem fram hefur farið í Olísdeild kvenna á seinni árum. Liðin átta koma einstaklega vel undir mótið búin. Þau hafa öll styrkst verulega, meðal annars vegna...
„Ég fæ líklega mínar fyrstu mínutur í kvöld,“ sagði Haukur Þrastarson, handknattleiksmaðurinn efnilegi og landsliðsmaður, þegar handbolti.is heyrði í honum í morgun. Haukur kvaddi Selfoss-liðið í sumar og gekk til liðs við eitt stærsta félagslið Evrópu, Vive Kielce. Kielce...
„Við hefðum alveg þegið annað stigið og finnst við hafa átt það skilið,“ sagði Halldór Örn Tryggvason, annar þjálfara karlaliðs Þórs Akureyrar, eftir grátlegt tap fyrir Aftureldingu, 24:22, í Olísdeild karla í handknattleik á Varmá í gærkvöld. Leikurinn var...
Hornamaðurinn Gabríel Martinez Róbertsson leikur ekki með ÍBV næstu sex vikurnar vegna meiðsla. Þetta staðfesti Kristinn Guðmundsson, annar þjálfara ÍBV, við handbolta.is í gærkvöld eftir sigur ÍBV á ÍR í upphafsleik Olísdeildar karla í handknattleik, 38:31, í Austurbergi.Gabríel fingurbrotnaði...
„Fyrstu leikirnir snúast bara um að ná í stigin tvö, ekkert annað,“ sagði Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, eftir nauman sigur, 24:22, á Þór frá Akureyri á Varmá í kvöld fyrsta leik liðanna í Olísdeildinni á leiktíðinni. Sigurinn stóð tæpar...
„ Við skoruðum reyndar 38 mörk en fengum á okkur 31, þar af 17 í fyrri hálfleik. Það er of mikið og þurftum að breyta um varnarleik í miðjum leik sem við eigum ekki að þurfa gegn liði eins...
„Það var margt gott í okkar leik og við erum nokkuð ánægðir þótt það sé auðvitað aldrei gaman að tapa,“ sagði Kristinn Björgúlfsson, þjálfari karlaliðs ÍR, eftir sjö marka tap fyrir ÍBV í Olísdeild karla í kvöld en leikið...
Nýliðar Gróttu voru hársbreidd frá því að krækja i a.m.k. annað stigið gegn Haukum í viðureign liðanna í Olísdeild karla í kvöld en leikið var í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi. Lokatölur, 20:19, fyrir Haukana. Segja má að þeir hafi sloppið...
Afturelding náði að kreista fram sigur á síðustu hálfu mínútunni gegn nýliðum Þórs Akureyrar að Varmá, 24:22, eftir að jafnt var í hálfleik, 11:11, í annars jöfnum leik. Úrslitin réðust á síðustu 15 sekúndunum þegar Mosfellingar skoruðu tvö mörk, þar...