- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Alusovski tekur til óspilltra málanna á hjá Þór

Norður Makedóníumaðurinn Stevce Alusovski er mættur til starfa hjá Þór Akureyri. Í gær hitti hann leikmenn karlaliðsins, stjórn deildarinnar og unglingaráð, eftir því sem fram kemur á heimsíðu Þórs. Alusovski tekur til óspilltra málanna í dag og stýrir sinni...

U17: Á leið í undankeppi EM í lok nóvember

Annað sætið í B-deild Evrópumótsins í gær tryggði U17 ára landsliði Íslands sæti í undankeppni EM2023 sem fram fer 22. til 28. nóvember. Um verður að ræða mót sem fimm landslið taka þátt í og keppa um einn farseðil...

Molakaffi: Bjarki, Gunnar Óli, Arnór, Þjóðverjar, Appelgren

Bjarki Bóasson og Gunnar Óli Gústafsson dómarar stóðu í ströngu við dómgæslu á leikjum í B-deild Evrópumóts kvenna síðustu daga. Þeir dæmdu sex leiki, síðast í gær viðureign Hvíta-Rússlands og Litáen. Eins og aðrir í íslenska hópnum í Klaipéda...
- Auglýsing -

U17: „Stelpurnar geta verið stoltar af frammistöðunni“

„Stelpurnar geta verið afar ánægðar með frammistöðu sína og ég er viss um að þær verða það eftir fáeina daga þegar rykið hefur sest,“ sagði Ágúst Þór Jóhannesson, þjálfari U17 ára landsliðs kvenna við handbolta.is eftir tap íslenska liðsins...

U17: Þrjár íslenskar í úrvalsliði mótsins

Elísa Elíasdóttir, Tinna Sigurrós Traustadóttir og Lilja Ágústsdóttir voru valdar í úrvalslið B-deildar Evrópumóts 17 ára landsliða sem lauk í Klaipéda í Litáen í dag þar sem íslenska landsliðið náði þeim frábæra árangri að hljóta silfurverðlaun. Elísa var valin besti...

U17: Koma heim með silfur um hálsinn eftir hetjulega frammistöðu

Leikmenn U17 ára landsliðs kvenna koma heim á morgun með silfurverðlaun um hálsinn eftir að hafa hafnað í öðru sæti í B-deild Evrópumótsins í Klaipéda í Litáen í dag. Í hörkuúrslitaleik mátti íslenska liðið bíta í það eldsúra epli...
- Auglýsing -

U19: Myndasyrpa úr sigurleiknum á Serbum

Íslenska landsliðið, skipað leikmönnum 19 ára og yngri vann Serba í lokaleik sínum í riðlakeppni EM í Króatíu í háspennuleik, 31:30, og leikur í millriðlum. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá sigurleiknum í dag frá EHF/Kolektiffimages sem fanga...

U19: Baráttusigur skilaði Íslandi í átta liða úrslit EM

Ísland tryggði sér sæti í milliriðlum eða átta liða úrslitum Evrópumóts karla 19 ára og yngri í dag með miklum vinnusigri á Serbum, 31:30, í lokaumferð A-riðils keppninnar. Íslenska liðið mætir þar með Spánverjum og Svíum í átta liða...

Einn kemur þá annar fer

Handknattleiksdeild Gróttu hefur samið við Japanann Akimasa Abe um að leika með liðinu á næstu leiktíð. Abe er 24 ára gamall og kemur frá félaginu Wakunaga Leolic í Japan. Hann er 185 cm á hæð og er rétthent skytta. Grótta...
- Auglýsing -

U19: Spenna í loftinu í Varazdin – myndir

Íslenska landsliðið, skipað leikmönnum 19 ára og yngri er þessa stundina að leika við Serba í þriðju og síðustu umferð A-riðils Evrópumótsins í Varazdin í Króatíu. Serbar eru marki yfir í hálfleik eftir að hafa byrjað leikinn vel og...

Myndir U17: Undirbúningur fyrir úrslitaleikinn

Stúlkurnar í U17 ára landsliði Íslands leikur til úrslita í dag við landslið Norður Makedóníu í B-deild Evrópumótsins í handknattleik kvenna í Klaipéda í Litaén. Leikurinn hefst klukkan 15 og verður í beinni útsendingu hjá ehftv.com. Að loknum morgunmat í...

U17: Skiljum allt eftir á gólfinu

„Það er tilhlökkun í hópnum fyrir úrslitaleiknum í dag. Við förum í leikinn með það að markmiði að leggja allt sem við eigum í hann. Allt verður skilið eftir á gólfinu í leikslok. Vonandi dugir það okkur til þess...
- Auglýsing -

U19: Sæti í átta liða úrslitum er í húfi

Strákarnir í U19 ára landsliðinu í handknattleik eiga fyrir höndum í dag úrslitaleik um hvort þeir komast í átta liða úrslit eða ekki á Evrópumótinu sem haldið er í Króatíu. Þeir mæta landsliði Serba í Varazdin í þriðju og...

Molakaffi: Olsen, Horzen og Sand

Danski handknattleiksmaðurinn Morten Olsen tilkynnti í gær að hann gefi ekki kost á sér framar í danska landsliðið. Olsen sem er 36 ára gamall var í silfurliði Dana á Ólympíuleikunum sem lauk fyrir viku. Hann lék sinn fyrsta landsleik...

U17: Myndir úr sigurleiknum á Spánverjum

Eins og kom fram fyrr í dag á handbolti.is þá tryggði íslenska landsliðið, skipað leikmönnum 17 ára og yngri, sér sæti í úrslitum B-deildar Evrópumóts kvenna í Litáen í dag með sigri á Spánverjum, 32:31. Handbolti.is fékk sendar nokkrar myndir...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -