Stefán Rafn Sigurmannsson leikur ekki með Haukum í kvöld þegar deildarmeistararnir sækja Valsmenn heim í fyrri viðureign liðanna í úrslitum Íslandsmótsins í handknattleik karla. Svo herma heimildir handbolta.is.Stefán Rafn tognaði á læri í fyrri hálfleik í síðari viðureign Hauka...
„Markvarslan, hraðaupphlaupin hjá Val og línuspil Haukanna verða væntanlega þau atriði sem skipta hvað mestu máli um hvort liðið fer með sigur úr býtum í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn,“ segir hinn þrautreyndi handknattleiksþjálfari Einar Andri Einarsson þegar handbolti.is leitaði eftir...
„Við ættum að geta verið með fjögur hólf og hvert þeirra getur tekið 300 manns í sæti. En það hefur ekki verið framboð af miðum sem hefur hindrað fólk í að koma á völlinn,“ segir Theódór Hjalti Valsson...
„Þú verður að spyrja stjórnendur félagsins af hverju ég verð ekki áfram.“ Eitthvað í þessa veruna svarar Aron Pálmarsson nýkrýndur Evrópumeistari í þriðja sinn spurningu spænska fjölmiðilsins RAC1 af hverju hann sé á förum frá Evrópumeisturum Barcelona eftir fjögur...
Fyrri viðureign deildarmeistara Hauka og Vals um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik fer fram í kvöld í Origohöll Valsmanna. Flautað verður til leiks klukkan 19.30.
Liðin unnu sitt hvorn leikinn þegar þau mættust í Olísdeildinni á keppnistímabilinu en Haukar eru einu...
Pólska meistaraliðið Lomza Vive Kielce sem Haukur Þrastarson og Sigvaldi Björn Guðjónsson leika með hefur samið við frönsku landsliðsmennina Nedim Remili og Benoît Kounkoud. Þeir koma til Kielce eftir ár. Báðir eru nú í herbúðum Paris SG. Samningur þeirra...
Handknattleiksdeild Hauka hefur gert samning við Önnu Láru Davíðsdóttur til næstu tveggja ára. Anna Lára, sem verður 21 árs á þessu ári, kemur til liðs við Hauka frá Gróttu þar sem hún hefur leikið undanfarin ár. Hún lék 16...
Handboltaskóli HSÍ og Alvogen fór fram í 26. skiptið um helgina í TM Höllinni í Garðabæ en þátttakendur í þetta skiptið voru stúlkur og drengir fædd 2008.
Eins og undanfarin ár tilnefndu aðildarfélag HSÍ fjóra leikmenn af hvoru kyni...
Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í svissneska liðinu Kadetten Schaffhausen standa höllum fæti í keppni við Pfadi Winterthur um meistaratitilinn í handknattleik karla í Sviss eftir annað tap í úrslitarimmu liðanna í kvöld, 33:28. Leikið var í Schaffhausen. Pfadi...
Handknattleiksmarkvörðurinn Sveinbjörn Pétursson er í liði 34. umferðar í þýsku 2. deildinni sem lauk um helgina. Sveinbjörn, eða Bubbi eins og hann er kallaður, fór hamförum í marki EHV Aue á laugardaginn þegar liðið vann Gummersbach í uppgjöri Íslendingaliða...
Ómar Ingi Magnússon sækir jafnt og þétt að Marcel Schiller, markahæsta leikmanni þýsku 1. deildarinnar. Schiller er aðeins fjórum mörkum á undan Selfyssingnum þegar fjórar umferðir eru eftir óleiknar. Dregið hefur saman með þeim í undanförnum leikjum og ljóst...
Mörg glæsileg tilþrif og mörk sáust í leikjunum fjórum sem fram fóru á laugardag og sunnudag þegar smiðshöggið var rekið á keppni Meistaradeildar Evrópu í karlaflokki með sigri Barcelona. Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur tekið saman myndskeið með fimm frábærum...
Báðir úrslitaleikir Hauka og Vals um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla sem framundan eru hefjast klukkan 19.30. Fyrri viðureignin fer fram í Origohöll Valsara á morgun, þriðjudag, og sú síðari verður á föstudaginn í Schenkerhöll Hauka á Ásvöllum.
Sömu reglur verða...
Barcelona varð Evrópumeistari meistaraliða, sem kallast Meistaradeild Evrópu, í tíunda sinn í gær þegar liðið vann Aalborg Håndbold í úrslitaleik í Lanxess-Arena í Köln, 36:23. Sex ár eru síðan Barcelona vann síðast Meistaradeild Evrópu. Barcelonaliðið fór á kostum í...
„Auðvitað var þetta svakalegt högg í gær, en við verðum líka gera okkur grein fyrir því að þetta Barca lið vann 60 leiki af 60 á þessu tímabili. Þannig að eftir einhverja daga eigum við eftir að líta ...