- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Molakaffi: Birta, Harpa, Tryggvi, Tjörvi, Arnór, Daníel

Birta Rún Grétarsdóttir skoraði eitt mark í sigri á Fjellhammer á Pors í 1. umferð næst efstu deildar norska handknattleiksins í gær, 33:21. Birta Rún, sem lék með HK hér á landi, er að hefja sitt annað keppnistímabil með...

Dagur tók upp þráðinn þar sem frá var horfið í vor

Dagur Gautason tók upp þráðinn á handknattleiksvellinum þar sem frá var horfið í vor þegar lið hans ØIF Arendal vann Haslum örugglega á útivelli í fyrstu umferð norsku úrvalsdeildarinnar, 33:26. Dagur, sem var með aðsópsmestu leikmönnum norsku úrvalsdeildarinnar á síðasta...

Benedikt Gunnar lét strax að sér kveða í Noregi

Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði fjögur mörk í fyrsta leik sínum með norska meistaraliðinu í Kolstad í dag þegar keppni hófst í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla. Kolstad vann Runar í heimsókn sinni suður í Sandefjord, 37:34. Sex mörkum munaði...
- Auglýsing -

Myndir: Verðlaunahafar Ragnarsmóts kvenna

Ragnarsmóti kvenna í handknattleik lauk í Sethöllinni á Selfossi í gær. Að loknum síðasta leik voru meistarar krýndir. Eins og kom fram á handbolti.is í morgun þá stóð lið Selfoss uppi sem sigurvegari. Að vanda lét mótshaldari, handknattleiksdeild Selfoss, ekki...

Við erum frjálsir hér í Fjölni

https://www.youtube.com/watch?v=J_peB0LEQlk „Ég er fullur tilhlökkunar fyrir tímabilinu sem framundan er og því að takast á við verðugt verkefni á heimaslóðum,“ segir Gunnar Steinn Jónsson fyrrverandi landsliðs- og atvinnumaður í handknattleik um það verkefni sitt að taka við þjálfun karlaliðs Fjölnis,...

Selfoss vann allar viðureignir sínar á Ragnarsmótinu

Lið Selfoss stóð uppi sem sigurvegari á Ragnarsmóti kvenna sem lauk í Sethöllinni á Selfossi í gær. Selfoss-liðið vann ÍBV í þriðju og síðustu umferðinni, 27:24, og hafði þar með betur í hverri einustu viðureign sinni á mótinu. FH,...
- Auglýsing -

Molakaffi: Óðinn, Orri, Þorsteinn, Haukur, Ólafur, Janus, Viktor, Arnar og fleiri

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sex mörk, þar af þrjú úr vítaköstum, þegar Kadetten Schaffhausen vann BSV Bern á heimavelli í gær í fyrstu umferð A-deildarinnar í Sviss.  Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting leika til úrslita í dag við...

Níu mörk Ómars Inga nægðu ekki til sigurs í meistarakeppninni

Þótt Ómar Ingi Magnússon væri atkvæðamikill í liði SC Magdeburg í dag þá urðu Þýskalandsmeistarar SC Magdeburg að bíta í það súra epli að tapa fyrir Füchse Berlin í Meistarakeppni þýska handknattleiksins í dag, 32:30. Ómar Ingi skoraði níu...

Þrjú af fjórum liðum Íslendinga standa vel að vígi

Fyrir utan Val léku fjögur félagslið sem tengjast íslenskum handknattleiksmönnum í forkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik í dag. Þrjú þeirra, Bjerringbro/Silkeborg, Gummersbach og Melsungen unnu sína leiki og standa vel að vígi fyrir síðari viðureignirnar um næstu helgi, ekki...
- Auglýsing -

Þetta dugir okkur, ég er alveg viss um það

„Seinni hálfleikur var frábær af okkar hálfu og uppbót fyrir fyrsta korterið í leiknum þegar við virtumst ekki vera mættir til leiks,“ sagði Ísak Gústafsson leikmaður Vals í samtali við handbolta.is í kvöld eftir að Valur vann RK Bjelin...

Framúrskarandi síðari hálfleikur færði Val níu marka sigur

Valsmenn unnu RK Bjelin Spacva Vinkovc frá Króatíu með níu marka mun á heimavelli í fyrri viðureign liðanna í forkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik, 34:25, í kvöld, eftir að hafa verið þremur mörkum undir í hálfleik, 16:13. Síðari viðureign...

Guð minn góður hvað það var gaman að mæta út á völlinn

„Guð minn góður hvað það var gaman að mæta aftur út á völlinn eftir allan þennan tíma,“ sagði Lovísa Thompson sem lék með Val í dag í fyrsta sinn síðan í maí 2022. Hún fór út til Danmerkur þá...
- Auglýsing -

Þær keyrðu bara yfir okkur – áttum ekki möguleika

„Valsliðið var mikið betra í dag og keyrði bara yfir okkur,“ sagði Patrekur Jóhannesson þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar eftir stórtap, 29:10, fyrir Val í Meistarakeppni HSÍ á Hlíðarenda í dag. Stjarnan var án tveggja öflugra leikmanna, Emblu Steindórsdóttur og Tinnu...

Þetta var svakalega mikill munur

„Þetta var svakalega mikill munur en á móti kemur að maður vissi ekki alveg við hverju mátti búast af Stjörnunni,“ sagði Elín Rósa Magnúsdóttir markahæsti leikmaður Vals í stórsigrinum á Stjörnunni í Meistarakeppni HSÍ í dag, 29:10, þegar handbolti.is...

Ótrúlegir yfirburðir Valskvenna

Valur hafði mikla yfirburði í leik við Stjörnuna í Meistarakeppni HSÍ í kvennaflokki í N1-höllinni í dag. Himinn og haf skildi liðin nánast að og voru úrslitin eftir því, 29:10. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 17:7. Valur var kominn...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -