Í dag verður dregið í Vínarborg í riðla lokakeppni Evrópumótsins í handknattleik kvenna. Mótið fer fram frá 28. nóvember til 15. desember í Austurríki, Ungverjalandi og Sviss.
Nafn Íslands verður á meðal þeirra 24 þjóða sem dregin verða úr skálunum...
Handknattleiksmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson hefur ákveðið að ganga til liðs við Stjörnuna að lokinni eins árs veru hjá Selfossi en liðið féll úr Olísdeildinni á dögunum.
Sveinn Andri sem er á 25. aldursári lék fyrst með meistaraflokksliði ÍR. Hann skipti...
Bjarki Finnbogason og samherjar í Anderstorps halda sæti sínu í næstu efstu deild sænska handknattleiksins, Allsvenskan. Þeir unnu Örebro í oddaleik í umspili deildarinnar, 28:24, á heimavelli í gær. Bjarki,sem lék um árabil með HK hér á landi,...
Landsliðskonan í handknattleik, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, færir sig um set innan Svíþjóðar í sumar. Hún hefur samið við úrvalsdeildarliðið Kristianstad Handboll. Undanfarin nærri tvö ár hefur Jóhanna Margrét leikið með Skara HF sem einnig leikur í úrvalsdeildinni.
Kristianstad Handboll hafnaði...
Sebastian Popovic Alexandersson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Víkings í handbolta til næstu tveggja ára. Hann tekur við af Jóni Brynjari Björnssyni sem þjálfað hefur liðið undanfarin tvö ár. Fram kemur í tilkynningu Víkings í kvöld að Sebastian sé...
Aldís Ásta Heimisdóttir og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoruðu þrjú mörk hvor þegar lið þeirra, Skara HF, tapaði fyrir H65 Höör í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld, 30:27. Leikurinn fór fram á...
Íslendingaliðin Kolstad, Drammen og ØIF Arendal tryggðu sér sæti í undanúrslitum í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla í kvöld þegar þau lögðu andstæðinga sína í annarri umferð átta liða úrslita.
Sigvaldi Björn Guðjónsson og samherjar í Kolstad lögðu Halden örugglega...
Handknattleikskonan Svala Júlía Gunnarsdóttir hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Olísdeildarlið Fram.„Hún er uppalin hjá félaginu, spilaði á sínum tíma með góðum árangri fyrir yngri flokka félagsins og hefur átt sæti yngri landsliðshópum. Hún hefur spilað með...
Amelía Laufey G. Miljevic hefur framlengt samning sinn við handknattleikslið HK. Amelía lék stórt hlutverk í vetur í ungu liði HK. Hún spilaði alla 18 leiki liðsins í Grill 66 deildinni og skoraði í þeim 46 mörk.
„Amelía er öflug...
Handknattleiksmarkvörður Íslandsmeistaranna, Petar Jokanovic, hefur skrifað undir nýjan tvegga ára samning við ÍBV. Jokanovic gekk til liðs við ÍBV árið 2019 og er að verða einn af reyndari leikmönnum liðsins sem mætir FH í undanúrslitum Olísdeildar. Fyrsta viðureign liðanna...
https://www.youtube.com/watch?v=_d8PgwMVAq4
Róbert Geir Gíslason framkvæmdastjóri HSÍ segir það mikla viðurkenningu fyrir HSÍ og íslenskt íþróttalíf að vera treyst fyrir að halda hluta heimsmeistaramóts karla í handknattleik í janúar 2031. Samvinna við Dani og Norðmenn skipti mjög miklu máli þar sem...
Mótanefnd HSÍ hefur staðfest leiktíma í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik. Sigla varð á milli skers og báru þegar leikjum Aftureldingar og Vals var raðað niður vegna þátttöku Vals í undanúrslitum Evrópubikarkeppninnar sunnudaginn 21. apríl á heimavelli og viku...
Norska landsliðið í handknattleik kvenna, sem Þórir Hergeirsson þjálfar, hafnaði í Norðurlandariðli þegar dregið var í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna sem fram fara í Frakklandi í sumar. Norska landsliðið mætir danska landsliðinu og því sænska en lið þjóðanna þriggja voru í...
Íslensku þjálfararnir Alfreð Gíslason og Dagur Sigurðsson mætast í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í París í sumar. Landslið þeirra, Þýskaland og Króatía, drógust saman í riðil þegar dregið var í riðlana tvo í gær. Þeir mættust einnig í forkeppni leikanna í...
Mikkel Hansen lék í fyrsta sinn í gær með Aalborg eftir sex vikna fjarveru í bikarleik við smáliðið Skive. Hansen hefur glímt við meiðsli hné en liðþófi mun hafa gert honum gramt í geði. Hansen verður væntanlega kominn í...