Fréttir

- Auglýsing -

Haukar kræktu í fimmta sætið – Fram lagði ÍBV

Haukar tryggðu sér fimmta sæti Olísdeildar kvenna í handknattleik þegar 21. og síðasta umferðin fór fram. Haukar unnu HK, 32:25, á Ásvöllum. KA/Þór sem sat í fimmta sæti féll niður í það sjötta eftir tap fyrir Val, 33:19. Haukar...

Stórleikur Ágústs Elís dugði ekki

Ágúst Elí Björgvinsson átti stórleik í marki Ribe-Esbjerg í dag þegar liðið tapaði fyrir Aalborg, 30:26, í Blue Water Dokken í Esbjerg í næst síðustu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla. Ágúst Elí varði 17 skot, þar af eitt...

Leika um bronsverðlaun í bikarkeppninni á morgun

Ekki tókst Söndru Erlingsdóttur og samherjum hennar í TuS Metzingen að vinna hið ægisterka meistaralið Bietigheim í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í dag. Bietigheim hafði nokkra yfirburði og vann með 10 marka mun í undanúrslitaleik í Porsche-Arena í Stuttgart, 39:29....
- Auglýsing -

Tekur sér frí frá landsliðinu

Björgvin Páll Gústavsson markvörður hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í íslenska landsliðið fyrir væntanlega leiki við Ísrael og Eistland í undankeppni Evrópumóts karla í handknatteik sem fram fara undir lok þess mánaðar.Hann greinir frá þessu í...

Vonir Gróttumanna dvína – Miskevich fór á kostum

Ekki tókst leikmönnum Gróttu að færast nær áttunda sæti Olísdeildar karla í handknattleik í dag. Þeir töpuðu fyrir ÍBV á heimavelli í ójöfnum leik, 33:24, eftir að hafa verið fjórum mörkum undir eftir fyrri hálfleik, 16:12.Grótta hefur þar með...

Íslendingaslagur í umspili

Framundan er Íslendingaslagur í umspili um keppnisrétt í næst efstu deild danska handknattleiksins. Andrea Jacobsen og samherjar í EH Aalborg mæta Bertu Rut Harðardóttur og félögum í Holstebro håndbold. Eftir tap EH Aalborg í uppgjörinu fyrir Bjerringbro fyrir viku...
- Auglýsing -

Gauti verður áfram í Úlfarsárdal

Handknattleiksmaðurinn öflugi Þorsteinn Gauti Hjálmarsson hefur skrifað undir nýjan samning við Fram. Samningurinn gildir til ársins 2025 og tekur við af þeim sem Gauti skrifaði undir þegar hann kom til Fram á nýjan leik fyrir tveimur árum að lokinni...

Fetar Sandra í fótspor Kristbjargar?

Sandra Erlingsdóttir landsliðskona í handknattleik verður í eldlínunni í dag þegar lið hennar TuS Metzingen leikur til undanúrslita í þýsku bikarkeppninni. TuS Metzingen mætir meisturum Bietigheim sem ekki hefur tapað leik í deildinni og þaðan af síður í bikarkeppninni...

Dagskráin: Áfram er haldið í leit að niðurstöðu

Síðasta umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik fer fram í dag. Niðurstaðan af keppni vetrarins liggur að mestu fyrir. Aðeins á eftir að gera út um það hvort KA/Þór eða Haukar hreppa fimmta eða sjötta sætið. Annað er nokkuð skýrt.ÍBV...
- Auglýsing -

Molakaffi: Halldór, Ásgeir, Tryggvi, Bjarni, Roland

Lærisveinar Halldórs Jóhanns Sigfússonar í TTH Holstebro töpuðu með minnsta mun, 30:29, í grannaslag við Mors-Thy  í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöld. Holstebro er þar með fallið í níunda sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina. SønderjyskE skaust upp í áttunda sætið...

HK kvaddi með 13 marka sigri – úrslit, lokastaða, umspilsleikir

HK fékk í kvöld afhent sigurlaun sín fyrir að vinna Grill 66-deildina í handknattleik karla. HK-liðið hélt upp á áfangann með því að vinna Fjölni örugglega, 33:20, í Kórnum. Þegar upp er staðið er HK með 35 stig af...

Áfram er spenna í fallslagnum – úrslit kvöldsins

Staðan er óbreytt á milli KA í 10. sæti Olísdeildar karla og ÍR í 11. sæti eftir leiki kvöldsins. Bæði liðin töpuðu viðureignum sínum. KA beið lægri hlut í heimsókn til FH, 28:27, í Kaplakrika. ÍR hafði ekkert upp...
- Auglýsing -

Afturelding – ÍR: hver er staðan?

Afturelding og ÍR mætast í 20. umferð Olísdeildar karla í íþróttamiðstöðinni á Varmá klukkan 19.30.Staðan í Olísdeild karla.Handbolti.is fylgist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan og mun um leið leiða hugann að tveimur öðrum leikjum sem fram...

Stór áfangi er í höfn í skipulagi vegna þjóðarhallar

Þórður Már Sigfússon, skipulagsfræðingur og verkefnastjóri deiliskipulags nýrrar þjóðarhallar hjá skipulagsfulltrúa Reykjavíkur segir í samtali við handbolta.is að skipulagsvinna við nýja þjóðarhöll fyrir innanhússíþróttir haldi áfram af fullum krafti. Stór áfangi átti sér stað í gær þegar borgarráð samþykkti...

Myndskeið: Tryggvi og Björgvin kvöddu með tilþrifum umferðarinnar

Valur lauk keppni í Evrópudeild karla í handknattleik á þriðjudagskvöld þegar lið félagsins tapaði öðru sinni fyrir Göppingen frá Þýskalandi í 16-liða úrslitum keppninnnar.Leikmenn Vals kvöddu keppnina með tilþrifum. Tryggvi Garðar Jónsson, sem skoraði 11 mörk í Göppingen á...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -