- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Myndir: Vonbrigði

Það voru leikmönnum, þjálfurum og starfsmönnum íslenska landsliðsins mikil vonbrigði að fá ekki a.m.k. annað stigið úr viðureigninni við Þýskalandi á Evrópumótinu í handknattleik karla í gærkvöld. Íslenska landsliðið lék sinn besta leik í keppninni en varð að sætta...

Skildi ekkert í síðustu sókn Þjóðverja

„Það var ömurlegt að tapa þessum leik. Mér fannst við eiga sigurinn skilinn,“ sagði Viktor Gísli Hallgrímsson markvörður í samtali við handbolta.is eftir tapið fyrir Þjóðverjum í kvöld, 26:24, í milliriðlakeppni Evrópumótsins í handknattleik karla í Lanxess-Arena í Köln. „Það...

Mjög erfitt að kyngja þessu

„Þetta er rúmlega svekkjandi. Það er mjög erfitt að kyngja þessu tapi,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik við handbolta.is þegar hann gekk af leikvelli að loknu tveggja marka tapi fyrir Þjóðverjum í milliriðlakeppni Evrópumótsins í handknattleik karla,...
- Auglýsing -

Kláruðum bara ekki færin

„Við spiluðum hörkuleik en vorum í vandræðum með færin. Varnarlega vorum við frábærir og sóknin var góð nema að við kláruðum ekki færin sem við komum okkur í,“ sagði Ómar Ingi Magnússon í samtali við handbolta.is eftir tveggja marka...

Aftur var færanýtingu ábótavant – sárt tap í hörkuleik

Íslenska landsliðið í handknattleik mátti þola sárt tap fyrir Þjóðverjum í fyrstu umferð milliriðlakeppni Evrópumótsins í handknattleik í Lanxess-Arena í Köln, 26:24. Sigurinn var innsiglaður með ólöglegri sókn á síðustu sekúndum. Leikinn dæmdu Gjorgji Nachesvki og Slave Nikolov frá...

Hrærigrautur fór í loftið í stað þjóðsöngsins

Alvarleg mistök áttu sér stað í Lanxess Arena fyrir viðureign Þýskalands og Íslands í milliriðlakeppni Evrópumótsins í handknattleik í kvöld. Þegar kom að því að leika íslenska þjóðsönginn fór allt annað lag af stað. Enginn af þeim sem sitja...
- Auglýsing -

Frakkar halda áfram á sigurbraut

Frakkar unnu Króata, 34:32, í milliriðli Íslands á Evrópumótinu í handknattleik karla í Lanxess Arena í kvöld og hafa þar með fullt hús stiga í riðlinum, fjögur. Króatar hafa eitt stig og hafa m.a. misst Austurríkismenn upp fyrir sig...

Einar Þorsteinn og Donni verða að bíta í súra eplið

Einar Þorsteinn Ólafsson og Kristján Örn Kristjánsson, Donni, verða utan leikmannahópsins sem mætir þýska landsliðinu í handknattleik í fyrstu umferð milliriðlakeppni Evrópumótsins klukkan 19.30 í kvöld. Donni var í hópnum gegn Ungverjum í fyrrakvöld. Óðinn Þór Ríkharðsson kemur í...

Austurríkismenn blanda sér í kapphlaupið – unnu Ungverja í háspennuleik

Austurríska landsliðið blandaði sér af alvöru í keppni um sæti í forkeppni Ólympíuleikanna í dag þegar það vann ungverska landsliðið með eins marks mun, 30:29, í fyrsta leik í milliriðli Íslands, milliriðli eitt, á Evrópumeistaramótinu í handknattleik karla. Austurríki...
- Auglýsing -

Þeir hafa skorað mörkin

Þeir leikmenn sem hafa skorað mörk (83) Íslands á EM, eru: Ómar Ingi Magnússon14/6Viggó Kristjánsson     13/6Bjarki Már Elísson12/1Sigvaldi Björn Guðjónsson11Elliði Snær Viðarsson10Aron Pálmarsson 8Elvar Örn Jónsson5Gísli Þorgeir Kristjánsson  3Janus Daði Smárason 3Arnar Freyr Arnarsson   2Óðinn Þór Ríkharðsson  1Stiven Tobar Valencia  1

Hvar eru „sprengjukastararnir“?

Þegar íslenska landsliðið tók þátt í heimsmeistarakeppninni í Vestur-Þýskalandi 1961 og hafnaði í sjötta sæti, var mikið skrifað um liðið og leikmenn liðsins. Sérstaklega eftir jafnteflisleik gegn Tékkóslóvakíu, 15:15. Geysileg spenna var á lokakafla leiksins, er íslensku leikmennirnir unnu...

Alfreð þjálfaði Ísland í síðasta EM-leik – Snorri Steinn markahæstur

Ísland og Þýskaland hafa aðeins mæst tvisvar sinnum á Evrópumóti karla í handknattleik, 2002 í Västerås í Svíþjóð og í Þrándheimi í Noregi sex árum síðar. Síðast þegar lið þjóðanna áttust við á EM, þ.e. fyrir 16 árum á hrollköldum...
- Auglýsing -

Ofast hefur verið skorað eftir gegnumbrot

Leikmenn íslenska liðsins hafa skorað 83 mörk í þremur leikjum á EM, sem er 27,67 mörk í leik; Serbía 27:27, Svartfjallaland 31:30 og Ungverjaland 25:33. Flest mörkin hafa verið skoruð eftir gegnumbrot, eða átján. Hér kemur listinn yfir skoruð...

Nokkrir sem kunnum vel við okkur í þessari höll

„Ég bjartsýnn á að okkur gangi vel að vinna í okkar málum. Það var fínn punktur að skipta um aðstæður, taka upp þráðinn á nýjum stað,“ sagði Aron Pálmarsson fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik karla í samtali við handbolta.is...

Valur hefur fjögurra stiga forskot – Afturelding lyfti sér af botninum

Valur hefur fjögurra stiga forystu í Olísdeild kvenna í handknattleik eftir stórsigur á næst efsta liði deildarinnar, Haukum, í Origohöllinni í 13. umferð deildarinnar sem fram fór í gærkvöld. Þórey Anna Ásgeirsdóttir hélt upp á framlengingu samnings sína við...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -