Eiður Rafn Valsson skoraði fyrsta mark Olísdeildar karla í gær þegar hann kom Fram yfir, 1:0, á móti Selfossi í upphafsleik deildarinnar. Um leið var þetta fyrsta markið sem skorað var í Olísdeildinni í nýju íþróttahúsi Fram í Úlfarsársdal.Markið...
Fjórir leikir fóru fram í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld. Úrslit þeirra voru eftirfarandi.
Gummersbach - SC Magdeburg 28:30 (12:12).- Elliði Snær Viðarsson skoraði tvö mörk fyrir Gummersbach og var einu sinni vísað af leikvelli. Guðjón Valur Sigurðsson...
Keppni í Olísdeild karla í handknattleik hófst í kvöld með fjórum leikjum. Úrslit þeirra og markaskor eru hér fyrir neðan.
Fimmti leikurinn í umferðinni fer fram annað kvöld á Ásvöllum. KA sækir Hauka heima og verður flautað til leiks klukkan...
Fjórir leikir fara fram í 1. umferð Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld.
Kl. 18: Fram - Selfoss.Kl. 19.30: Valur - Afturelding.Kl. 19.30: Grótta - ÍR.Kl. 19.40: FH - Stjarnan.
Handbolti.is er á leikjavakt, er með auga á leikjunum og uppfærir...
Hinn reyndi handknattleiksmarkvörður Björn Viðar Björnsson leikur ekki með ÍBV-liðinu á komandi keppnistímabili. Hann staðfesti þetta við handbolta.is í dag en grunur vaknaði um að Björn Viðar hafi rifað seglin þar sem hann hefur ekki tekið þátt í æfingaleikjum...
Svo virðist sem handagangur hafi verið í öskjunni meðal forsvarsmanna félaga og á skrifstofu HSÍ síðustu daga við frágang félagaskipta leikmanna, jafnt milli félaga innanlands og á milli landa. Hugsanlegt er að einhverjir hafi jafnvel vaknað upp við vondan...
Keppni hefst í Olísdeild karla í handknattleik í kvöld með fjórum leikjum og sá fimmti í fyrstu umferð fer fram annað kvöld. Eins og áður þá kljást 12 lið næstu mánuði um deildarmeistaratitilinn og sæti á meðal átta efstu...
Þá er komið að því að flautað verður til leiks í Olísdeild karla. Fyrstu fjórir leikir keppnistímabilsins verða háðir í kvöld. Að þessu sinni verður upphafsleikur Olísdeildar í nýju og glæsilegu íþróttahúsi Framara í Úlfarsárdal sem opnað var í...
Afturelding hefur samið við úkraínska hornamanninn Ihor Kopyshynskyi til eins árs og verður hann gjaldgengur með Mosfellingum í kvöld þegar þeir sækja Íslands- og bikarmeistara Vals heim í fyrstu umferð Olísdeildar karla.
Kopyshynskyi gekk til liðs við Hauka í upphafi...
Talið er að á sjöunda hundrað manns hafi komið saman í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi í gærkvöld á minningarleik um Ásmund Einarsson fyrrverandi formann handknattleiksdeildar Gróttu sem lést um aldur fram síðla í júlí.
Kvennalið Gróttu og U18 ára landslið Íslands...
Bjarni Ófeigur Valdimarsson fór hamförum og skoraði 11 mörk þegar Skövde vann Önnereds, 35:31, á heimvelli í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum sænsku bikarkeppninnar í gærkvöld. Skövde komst þar með áfram í átta liða úrslit en jafntefli varð...
Mikkel Hansen kætti stuðningsmenn Aalborg Håndbold í kvöld þegar hann lék afar vel og skoraði níu mörk í öðrum leik sínum fyrir félagið er það lagði Skanderborg Aarhus, 33:28, í annarri umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Álaborgarliðið er með...
Teitur Örn Einarsson var annar af tveimur Íslendingum sem gat fagnað eftir leiki kvöldsins í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Lið hans, Flensburg, vann GWD Minden með 13 marka mun í Flens-Arena í kvöld, 36:23. Teitur Örn lék í...
Í kvöld verður minningarleikur um Ásmund Einarsson í Hertzhöllinni, íþróttahúsi Gróttu á Seltjarnarnesi. Flautað verður til leiks klukkan 19.30 og mætast kvennalið Gróttu og U18 ára landsliðs kvenna.
Ásmundur Einarsson var formaður handknattleiksdeildar Gróttu þegar hann lést um aldur fram...
„Þetta er mjög mikill heiður en um leið leiðinlegt að geta ekki farið fyrir liðinu i fyrsta leiknum í deildinni,“ sagði handknattleikskonan Díana Dögg Magnúsdóttir við handbolta.is í gærkvöld eftir að sagt var frá því á heimasíðu þýska félagsliðsins...