- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Tvö áfram en tvö eru úr leik

Tvö svokölluð Íslendingalið komust áfram í þriðju umferð þýsku bikarkeppninnar í handknattleik karla í kvöld á sama tíma og tvö féllu úr keppni. Alexander Petersson skoraði fimm mörk í sex skotum fyrir MT Melsungen í þegar liðið vann 2. deildarliðið...

Myndir: Síðasta æfing fyrir orrustuna við Svía

Kvennalandsliðið í handknattleik æfði í kvöld í keppnissalnum í STIGA Sport Arena í Eskilstuna þar sem viðureign þess við sænska landsliðið fer fram á morgun í 6. riðli undankeppni Evrópumótsins. Um var að ræða aðra æfingu dagsins og eins...

Saga Sif kölluð strax til Svíþjóðar – Hafdís meiddist

Saga Sif Gísladóttir, markvörður Vals, hefur verið kölluð inn A-landslið kvenna í handknattleik sem mætir Svíþjóð í undankeppni EM 2022 Eskilstuna á morgun. Hafdís Renötudóttir meiddist á ökkla á æfingu í morgun og verður Saga Sif því til taks...
- Auglýsing -

Kom mér í opna skjöldu

„Það kom mér mjög á óvart að vera valin í æfingahópinn og ég reiknaði alls ekki með að vera í endanlegum hóp sem fór til til Svíþjóðar,“ sagði Elísa Elíasdóttir, 17 ára Vestmannaeyingur, sem er í A-landsliðshópnum sem mætir...

Fullyrt að Janus Daði fari til Noregs næsta sumar

Fullyrt er í dag að Janus Daði Smárason verði leikmaður norska úrvalsdeildarliðsins Kolstad frá og með næsta keppnistímabili. Handballleaks, síða á Instrgram telur sig hafa fyrir þessu áreiðanlegar heimildir. Áður hefur handbolti.is sagt frá fregnum TV2 í Noregi...

Ekkert mál hjá Magdeburg í Jedda

SC Magdeburg er komið í undanúrslit á heimsmeistaramóti félagsliða sem stendur yfir þessa dagana í Jedda í Sádi-Arabíu. Magdeburg vann Al Duhail frá Katar í morgun, 35:23, eftir að hafa verið sjö mörkum yfir í hálfleik, 16:9. Lið Al...
- Auglýsing -

Hildigunnur tekur slaginn á nýjan leik

Hildigunnur Einarsdóttir, leikmaður Vals, er mætt í landsliðið í handknattleik aftur eftir tveggja ára fjarveru. Hún tók síðast þátt í landsleikjum gegn Króötum og Frökkum í lok september 2019. Reyndar hafa ekki farið fram margir landsleikir síðan en í...

Áfangi hjá Unni eftir fjögur ár

Unnur Ómarsdóttir, vinstri hornamaður nýkrýndra bikarmeistara KA/Þórs, leikur sinn 30. landsleik á morgun þegar íslenska landsliðiðí handknattleik mætir því sænska í Eskilstuna í fyrstu umferð 6. riðils undankeppni EM. Þetta verður jafnframt fyrsti landsleikur Unnar í fjögur ár. „Það er...

Sú tíunda á leið í 100 leikja klúbbinn – vissi ekki af því

„Ég sá þetta fyrst í fréttinni, hafði bara ekkert leitt hugann að þessu fyrr en þá,“ sagði Rut Arnfjörð Jónsdóttir, landsliðskona í handknattleik, spurð út í hvort hún hefði haft augastað á þeim áfanga sem hún nær annað kvöld...
- Auglýsing -

Molakaffi: Donni, Pytlick, Mensah, Obradovic, Jaganjac

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, skoraði fjögur mörk í sex skotum þegar lið hans PAUC komst í átta liða úrslit frönsku bikarkeppninnar í gærkvöld með því að vinna Limoges, 36:34,  á útivelli.  Jan Pytlick, sem þjálfar karlalið SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni...

Bjarki Már skoraði 16 mörk

Bjarka Má Elíssyni héldu engin bönd í kvöld þegar hann skoraði meira en helming marka Lemgo er liðið vann Dormagen, 31:28, í annarri umferð þýsku bikarkeppninnar í handknattleik. Leikið var á heimavelli Dormagen. Bjarki Már sló upp sannkallaðri flugeldasýningu og...

Daníel Freyr skoraði tvisvar – Bjarni fagnaði sigri

Íslenskir handknattleiksmenn voru í sigurliðum í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld þegar tvö liðanna unnu leiki sína örugglega í fimmtu umferð deildarinnar. Daníel Freyr Andrésson, markvörður, skoraði tvö mörk og varði 10 skot, 32% hlutfallsmarkvarsla, þegar lið hans Guif...
- Auglýsing -

Haukar fóru illa með Selfyssinga

Haukar fóru illa með leikmenn Selfoss í kvöld í viðureign liðanna í Olísdeild karla en leikið var í Schenkerhöllinni á Ásvöllum. Þegar upp var staðið var munurinn níu mörk, 31:22, en mestur varð munurinn 12 mörk, 30:18, skömmu fyrir...

Myndir: Hristu úr sér ferðalagið á léttri æfingu

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna kom til Eskilstuna í Svíþjóð um kvöldmatarleytið í kvöld en það mætir sænska landsliðinu á fimmtudaginn í fyrstu umferð 6. riðils undankeppni Evrópumótsins. Að loknu snarli var farið á æfingu í STIGA Sports Arena þar...

Ágúst Þór og Elísa á ferð og flugi

Ágúst Þór Jóhannsson, aðstoðarþjálfari A-landsliðs kvenna, og Eyjamærin Elísa Elíasdóttir verða á ferð og flugi næstu daga. Þau fór út með landsliðinu til Svíþjóðar í morgun og taka þátt í leiknum við Svía í undankeppni EM á fimmtudagskvöld. Í...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -