Hlaðvarp Tryggva Rafnssonar, Handball Special, hefur rumskað á ný eftir að hafa legið í láginni um nokkurt skeið. Á dögunum kom út þáttur þar sem rætt var við einn fremsta handknattleiksmann þjóðarinnar frá upphafi, Kristján Arason.
„Ein helsta handboltahetja þjóðarinnar,...
Gísli Þorgeir Kristjánsson var í stóru hlutverki hjá SC Magdeburg í kvöld þegar liðið tryggði sér sæti í átta liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar í handknattleik með fimm marka sigur á ASV Hamm-Westafalen, 31:26, á heimavelli 2. deildarliðsins.
Gísli Þorgeir skoraði...
Ekkert lát er á sigurgöngu meistaraliðsins Elverum í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Í kvöld vann Elverum öruggan sigur á botnliði Bergen, 30:23, en leikið var í Björgvin. Elverum hefur þar með fullt hús stiga, 32, eftir 16 leiki í...
Leik ungmennaliðs Hauka og Kórdrengja í Grill66-deild karla sem fram átti að fara annað kvöld á Ásvöllum hefur verið frestað fram á nýtt ár. Viðureignin átti að vera sú síðasta í deildarkeppni meistaraflokks á Íslandsmótinu í handknattleik á þessu...
Fimm af þeim 20 leikmönnum sem Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari hefur valið til þátttöku á Evrópumótinu handknattleik í næsta mánuði voru ekki í hópnum sem tók þátt í heimsmeistaramótinu sem haldið var í Kaíró í Egyptalandi í upphafi þessa...
„Það var mjög ánægjulegt og ég var mjög glaður að fá þær fréttir að ég kæmi inn í hópinn. Þetta hefur verið draumur hjá mér síðan ég var mjög ungur að fara á stórmót með landsliðinu,“ sagði Orri Freyr...
Tveir leikmenn sem aldrei hafa leikið með íslenska landsliðinu á stórmóti voru valdir í 20 manna hópinn sem Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari, valdi og tilkynnti á blaðamannfundi í dag. Þeir eru Orri Freyr Þorkelsson, Elverum, og Elvar Ásgeirsson, Nancy.
Aðeins...
Klukkan 13 hefst blaðamannafundur Handknattleikssambands Íslands í höfuðstöðvum Arion banka. Á fundinum kynnir Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari karla, hvaða leikmenn hann hefur valið til þátttöku á Evrópumeistaramótinu í handknattleik sem hefst í Ungverjalandi og Slóvakíu 13. janúar.
Reikna má...
Handknattleiksþjálfarinn Ágúst Þór Jóhannsson og handknattleiksdeild Vals færa stuðningsmönnum sínum þau gleðitíðindi í aðdraganda jólahátíðarinnar að Ágúst Þór og Valur hafa gert með sér samkomulag um að Ágúst Þór haldi áfram þjálfun kvennaliðs Vals til ársins 2025.
Ágúst Þór tók...
Forsvarsmenn handknattleikssambands Litáen sendu frá sér neyðarkall í síðasta mánuði þegar þeir greindu frá að sú hætta væri fyrir hendi að draga verði þátttöku karlalandsliðsins á EM til baka sökum bágrar fjárhagsstöðu sambandsins.
Útilokað væri að stofna til meiri skulda...
Kórónuveirfaraldurinn er þegar farinn að setja strik í undirbúning landsliða fyrir Evrópumeistaramótið í handknattleik í næsta mánuði. Landslið Sviss hefur afboðað þátttöku sína í fjögurra liða móti sem halda á í Rúmeníu á milli jóla og nýárs. Ástæðan er...
Þýski hornamaðurinn Marius Steinhauser kveður Flensburg næsta sumar þótt hann eigi þá enn eitt ár eftir af samningi sínum við félagið. Steinhauser hefur samið við Hannover-Burgdorf og leysir þar af Jóhan á Plógv Hansen sem færir sig um set...
Færeyingurinn og Framarinn Vilhelm Poulsen er markahæstur í Olísdeild karla í handknattleik þegar hlé hefur verið gert á keppni í deildinni fram í lok janúar. Hann hefur skorað fimm mörkum meira en Óðinn Þór Ríkharðsson, KA, og FH-ingurinn Ásbjörn...
„Eins og staðan er núna er ég ekkert mjög bjartsýnn á það ef ég á að vera heiðarlegur,“ segir handknattleiksmaðurinn Haukur Þrastarson í samtali við Vísir.is í spurður hvort hann verði með íslenska landsliðinu á Evrópumeistaramótinu sem fram fer...
Hassan Moustafa, forseti Alþjóða handknattleikssambandsins, er himinsæll með hvernig til tókst með heimsmeistaramót kvenna í handknattleik sem lauk á Spáni í gær. Hann segir að mikilvægt hafi verið að fjölga þátttökuliðum mótsins en það taki sinn tíma að byggja...