- Auglýsing -
- Auglýsing -

Grill 66-deildir

- Auglýsing -

Hugarfarsleg prófraun að vinna deildina á sannfærandi hátt

„Við höfum náð okkar markmiði að vinna deildina og um leið er farið að hilla undir lok lengsta undirbúningstímabils liðs fyrir þátttöku í Olísdeildinni. Við erum enn á því tímabili,“ sagði Sebastian Alexandersson annar þjálfari karlaliðs HK í samtali...

HK hefur endurheimt sæti í deild þeirra bestu

HK tryggði sér í kvöld sigur í Grill 66-deild karla í handknattleik þegar liðið lagði Víking með tveggja marka mun, 30:28, í hörkuleik á heimavelli Víkinga í Safamýri. HK endurheimtir þar með sæti í Olísdeild á næstu leiktíð en...

Grótta setti strik í reikninginn hjá ÍR-ingum

Grótta vann öruggan sigur á ÍR, 28:21, í viðureign liðanna í Grill 66-deild kvenna í handknattleik í Hertzhöllinni í kvöld og kom þar með í veg fyrir að ÍR-ingar settust einir í efsta sæti deildarinnar. Þess í stað er...
- Auglýsing -

Dagskráin: Átta leikir í fjórum deildum

Átta leikir fara fram í fjórum deildum Íslandsmótsins í handknattleik í kvöld. Íslandsmeistarar Vals sækja ÍR-inga heim í upphafsleik 17. umferðar Olísdeildar karla kl. 18. Leikmenn Stjörnunnar og ÍR ríða á vaðið í 18. umferð Olísdeildar kvenna í TM-höllinni...

Hildur mætti til leiks með FH

Hildur Þorgeirsdóttir fyrrverandi landsliðskona hefur dregið fram keppnisskóna eða hreinlega keypt sér nýja og lék í kvöld með uppeldisfélaginu, FH, gegn Fjölni/Fylki í Grill 66-deildinni. Fjórtán ár eru liðin síðan Hildur lék síðast með FH á Íslandsmótinu í handknattleik. Hildur...

FH gaf engin grið – Valur vann bæði stigin í Kórnum

FH-ingar gáfu liðsmönnum Fjölnis/Fylkis engin grið í viðureign þeirra í Grill 66-deild kvenna í handknattleik í Kaplakrika í kvöld. FH var með yfirburði í leiknum og vann með 10 marka mun, 31:21, eftir að hafa verið átta mörkum yfir...
- Auglýsing -

Dagskráin: Þrír leikir í 16. umferð – tveir í Grill 66-deild

Sextánda umferð Olísdeildar karla í handknattleik hefst í dag með þremur spennandi leikjum, ef veður og færð leyfir. Einnig standa fyrir dyrum tveir leikir í Grill 66-deild kvenna. Olísdeild karla:Sethöllin: Selfoss - Hörður, kl. 16 - sýndur á Selfosstv.Skógarsel: ÍR...

Afturelding vann í háspennuleik – ÍR fylgir eins og skugginn

Afturelding og ÍR halda keppni um efsta sæti Grill 66-deildar kvenna áfram. Afturelding lagði Gróttu í háspennuleik á Varmá í kvöld, 25:24, á sama tíma og ÍR vann öruggan sigur á Víkingi, 28:18, í Skógarseli. Afturelding og ÍR hafa...

Dagskráin: Barist um síðasta sætið í undanúrslitum

Síðasti leikur átta liða úrslita Powerade-bikars karla (bikarkeppni HSÍ) fer fram í kvöld. Um sannkallaðan stórleik er að ræða í TM-höllinni. Bikarmeistarar Vals sækja Stjörnuna heim. Liðin eru í fyrsta og fjórða sæti deildarinnar. Flautað verður til leiks klukkan...
- Auglýsing -

Árni Stefán kemur heim í heiðardalinn

Árni Stefán Guðjónsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá FH til næstu þriggja ára. Hann tekur við starfinu í sumar. Árni Stefán þekkir hvern krók og kima í Kaplakrika enda rótgróinn FH-ingur. Hann er reyndur þjálfari sem starfað hefur...

Víkingur var sterkari á endasprettinum

Víkingar halda áfram að sigla í kjölfarið á efsta liði Grill 66-deildar karla í handknattleik, HK. Víkingur vann í kvöld ungmennalið Fram í hörkuleik í Úlfarsárdal með fimm marka mun, 38:33. Þar með hefur Víkingur 21 stig eftir 14...

Rut skoraði 12 mörk í níunda sigri Gróttu

Sigurjón Friðbjörn Björnsson stýrði Gróttu til sigurs í fyrsta leik sínum sem þjálfari kvennaliðs félagsins í dag þegar ungmennalið HK kom í heimsókn í Hertzhöllina til viðureignar í Grill 66-deildinni. Lokatölur voru 35:29 fyrir Gróttu sem var fimm mörkum...
- Auglýsing -

Markverðirnir reyndust FH-ingum erfiðir

Ungmennalið Vals vann stórsigur á FH í Grill 66-deild kvenna í handknattleik en viðureigninni er nýlega lokið í Origohöll Valsara. Lokatölur, 26:17, fyrir Val sem var átta mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 15:7. Markverður Vals reyndust leikmönnum FH einstaklega...

Dagskráin: Sjö leikir í þremur deildum ef veður leyfir

Til stendur að sjö leikir fari fram á Íslandsmóti meistaraflokka karla og kvenna í handknattleik í dag ef veður leyfir. Þar af verða þrír leikir í 15. umferð Olísdeildar karla. Olísdeild karla:Ísafjörður: Hörður - ÍR, kl. 14. Hertzhöllin: Grótta - Afturelding,...

Fimm marka sigur Fjölnis á heimavelli

Fjölnir vann öruggan sigur á ungmennaliði Vals í Grill 66-deild karla í kvöld þegar liðin mættust í Dalhúsum, 34:29. Fjölnir var með fjögurra marka forskot eftir fyrri hálfleik, 17:13. Liðið hefur nú 14 stig og er aðeins stigi á...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -