- Auglýsing -
- Auglýsing -

Okkar fólk úti

- Auglýsing -

Pólsku meistararnir sagðir bera víurnar í Viktor Gísla

Viktor Gísli Hallgrímsson landsliðsmarkvörður í handknattleik var sterklega orðaður við pólska meistaraliðið Orlen Wisła Płock í frétt pólska fjölmiðilsins TVP SPORT í gær. TVP SPORT segist hafa heimildir fyrir því að forráðamenn Płock hafi augastað á Viktori Gísla til...

Molakaffi: Ómar, Wiegert, Guðjón, Vyakhireva og fleiri, Jeppsson

Ómar Ingi Magnússon, leikmaður þýsku meistaranna SC Magdeburg, var valinn leikmaður maí-mánaðar í þýsku 1. deildinni í handknattleik í vali sem fór fram á meðal handknattleiksáhugafólks í kjöri á vefsíðu deildarinnar.  Enginn íslensku handknattleiksmannanna í þýsku 1. deildinni slapp inn...

Ómar Ingi og Viggó eru á meðal tíu markahæstu í Þýskalandi

Tveir Íslendingar voru á meðal 10 markahæstu leikmanna þýsku 1. deildarinnar í handknattleik á nýliðnu keppnistímabili, Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg, og Viggó Kristjánsson, Leipzig.Ómar Ingi, leikmaður meistara SC Magdeburg, varð þriðji markahæstur í þýsku 1. deildinni í handknattleik...
- Auglýsing -

Myndskeið: Tveir Íslendingar í síðasta liði umferðarinnar

Tveir íslenskir handknattleiksmenn eru í síðasta liði umferðarinnar í þýsku 1. deildarinnar sem opinberað var í morgun. Í gær fór fram 34. og síðasta umferð deildarinnar. Annar þeirra er Oddur Gretarsson vinstri hornamaður Balingen-Weilstetten. Hinn er Teitur Örn Einarsson...

Magdeburg meistari í annað sinn á þremur árum – uppgjör síðustu umferðar – lokastaðan

SC Magdeburg er þýskur meistari í handknattleik karla í þriðja sinn í sögu sinni og í annað skipti á þremur árum. Leikmenn liðsins tóku við sigurlaunum sínum á heimavelli í dag að loknum sigri á Wetzlar í síðustu umferð...

Myndskeið: Fleiri rósir í hnappagatið hjá Orra Frey í Portúgal

Orri Freyr Þorkelsson og samherjar í Sporting Lissabon bættu annarri rós í hnappagatið í kvöld þegar þeir unnu portúgölsku bikarkeppnina í handknattleik. Sporting lagði Porto, 34:30, í úrslitaleik í íþróttahöllinni í Viseu. Vika er síðan Sporting vann meistaratitilinn, einnig...
- Auglýsing -

Óðinn Þór meistari í Sviss annað árið í röð

Óðinn Þór Ríkharðsson varð í dag svissneskur meistari í handknattleik annað árið í röð með félagsliði sínu Kadetten Schaffhausen. Kadetten lagði HC Kriens-Luzern, 32:25, í fimmtu og síðustu viðureign liðanna á heimavelli. Staðan var jöfn, 12:12, að loknum fyrri...

Orri Freyr leikur til úrslita

Nýkrýndir Portúgalsmeistarar í handknattleik karla, Sporting Lissabon með landsliðsmanninn Orra Frey Þorkelsson innanborðs, leika til úrslita í bikarkeppninni í dag gegn Porto.Sporting vann Belenenses, 28:20, í undanúrslitum í keppnishöllinni í Viseu í gær. Í kjölfarið lagði Porto liðsmenn Póvoa...

Molakaffi: Tumi Steinn, Sveinn, Ólafur, Sveinbjörn

Tumi Steinn Rúnarsson skoraði eitt mark og átti eina stoðsendingu í síðasta leik sínum með HSC 2000 Coburg í lokaumferð 2. deildar þýska handknattleiksins í gær. HSC 2000 Coburg tapaði fyrir Eulen Ludwigshafen, 35:30, í Friedrich-Ebert-Halle í Ludwigshafen. Tumi...
- Auglýsing -

Töpuðu í undanúrslitum umspilsins – kveðjuleikur Grétars Ara

Grétar Ari Guðjónsson og liðsfélagar í Sélestat töpuðu fyrir Istres í undanúrslitum umspils næst efstu deildar franska handknattleiksins í gær, 28:26. Þar með er ljóst að Sélestat leikur ekki í efstu deild franska handknattleiksins á næstu leiktíð. Grétar Ari...

Aalborg meistari eftir spennuleik – Lærisveinar Guðmundar hlutu silfur

Aalborg Håndbold varð í dag danskur meistari í handknattleik með naumum sigri á Fredericia HK, lærisveinum Guðmundur Þórðar Guðmundssonar, 27:26, í æsilega spennandi úrslitaleik í Álaborg. Mads Hoxer Hangaard skoraði sigurmarkið 40 sekúndum fyrir leikslok. Áður en Hoxer skoraði hafði...

Axel er annar þjálfara ársins í Noregi

Axel Stefánsson og Kenneth Gabrielsen þjálfarar Storhamar voru kjörnir þjálfarar ársins í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik kvenna. Undir stjórn þeirra félaga hafnaði Storhamar í öðru sæti í deildinni og í úrslitakeppninni. Stærsta afrek Axel og Gabrielsen var sigur Storhamar í...
- Auglýsing -

Molakaffi: Hannes Jón, oddaleikur, Frakkland

Hannes Jón Jónsson og liðsmenn hans í Alpla Hard töpuðu með átta marka mun fyrir Linz í öðrum úrslitaleik liðanna um austurríska meistaratitilinn í handknattleik í gær, 36:28. Leikurinn fór fram í Linz. Liðin hafa einn vinning hvort og...

Harpa Rut fékk silfurverðlaun að loknum kveðjuleiknum

Harpa Rut Jónsdóttir lauk handknattleiksferlinum í dag með því að taka við silfurverðlaunum að loknum oddaleik liðs hennar, GC Amicitia Zürich, gegn LC Brühl Handball um meistaratitilinn í svissnesku úrvalsdeildinni. LC Brühl vann, 31:30. Framlengja varð leikinn til þess...

Sjö sinnum meistari á áratug í fjórum löndum

Þýska handknattleiksliðið SC Magdeburg varð í gærkvöld þýskur meistari í handknattleik. Meðal leikmanna liðsins er Selfyssingurinn Janus Daði Smárason sem nú verður landsmeistari í handknattleik í sjöunda skipti á síðustu 10 árum. Stefán Arnason handknattleiksþjálfari hjá Aftureldingu bendir á þessa...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -