- Auglýsing -
- Auglýsing -

Monthly Archives: May, 2026

Thea Imani heldur til Rúmeníu

Landsliðskonan Thea Imani Sturludóttir hefur samið við rúmenska félagið SCM Craiova um að leika með liðinu frá og með næsta tímabili. Þetta kemur fram í tilkynningu á samfélagsmiðlum Vals. Thea hefur verið lykilmaður hjá Val um langt árabil og unnið...

Alfreð gantast: „Gæti þurft að svipta hann bandinu“

Alfreð Gíslason, þjálfari þýska karlalandsliðsins, sló á létta strengi í innslagi Handknattleikssambands Þýskalands á Youtube-rás sambandsins á dögunum. Í innslaginu var rætt við Alfreð og Niko Kovac, þjálfara karlaliðs BV Borussia Dortmund í fótbolta, um hitt og þetta. Alfreð sagðist...

Molakaffi: Einar, Sveinn

Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði eitt mark, gaf eina stoðsendingu og varði tvö skot í vörninni þegar lið hans, HSV Hamburg, vann Stuttgart, 31:26, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Leikið var í Sporthalle Hamburg. HSV Hamburg situr...

Oddaleikur í undanúrslitum eftir naumt tap

Blomberg-Lippe með landsliðskonurnar Andreu Jacobsen, Díönu Dögg Magnúsdóttur og Elínu Rósu Magnúsdóttur mætir Thüringer HC í oddaleik í undanúrslitum úrslitakeppni þýsku 1. deildarinnar í handknattleik kvenna. Blomberg-Lippe tapaði með minnsta mun, 29:28, í Salza-Halle, heimavelli Thüringer HC í kvöld....

Birgir Steinn og samherjar eru fallnir úr leik

Birgir Steinn Jónsson og liðsfélagar í IK Sävehof féllu í dag úr leik í undanúrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Þeir töpuðu með þriggja marka mun, 37:34, fyrir Malmö í Baltiska Hallen í Malmö. IK Sävehof vann ekki leik...

Verður Wille næsti þjálfari Óðins Þórs?

Orðrómur er uppi um að Jonas Wille, fráfarandi þjálfari karlalandsliðs Noregs, taki í sumar við þjálfun svissneska meistaraliðsins Kadetten Schaffhausen sem Óðinn Þór Ríkharðsson landsliðsmaður leikur með. Hrvoje Horvat hefur þjálfað Kadetten Schaffhausen frá 2023. Hann tók við af Aðalsteini...

Molakaffi: Óðinn, Lena, Janus, Tjörvi

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 11 mörk, átta þeirra úr vítaköstum, þegar lið hans, Kadetten Schaffhausen, vann BSV Bern, 31:30, í þriðju og síðustu viðureign liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni svissnesku A-deildarinnar í handknattleik á heimavelli í gær. Kadetten Schaffhausen leikur...

Sigur hjá Ísaki í tvíframlengdri viðureign í undanúrslitum

Ísak Steinsson og samherjar í Drammen HK unnu Elverum í tvíframlengdum háspennuleik, 36:35, í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. Leikið var á heimavelli Elverum. Sondre Skovli skoraði sigurmarkið síðla í síðari framlengingunni...

Orri Freyr portúgalskur meistari þriðja árið í röð

Orri Freyr Þorkelsson varð í gærkvöld portúgalskur meistari þriðja árið í röð með Sporting Lissabon. Liðið innsiglaði meistaratitilinn með sjö marka sigri á FC Porto á heimavelli, 36:29. Enn þá eru tvær umferðir eftir af deildarkeppninni. Yfirburðir Sporting hafa...

Rúnar og liðsmenn skelltu Kiel – heimasigur hjá Bergischer

Rúnar Sigtryggsson stýrði HSG Wetzlar til sigurs annan leikinn í röð í gær er liðið lagði THW Kiel, 33:25, á heimavelli. Með sigrinum halda Rúnar og liðsmenn áfram að troða marvaðann á leið sinni til björgunar frá falli úr...
- Auglýsing -

Nýjustu fréttir

Handbolti.is – sögulok

Að vandlega hugsuðu máli er ákveðið að rekstri handbolti.is verði hætt í dag, mánudaginn 1. júní 2026. Ákvörðunin var...
- Auglýsing -