- Auglýsing -
- Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 11 mörk, átta þeirra úr vítaköstum, þegar lið hans, Kadetten Schaffhausen, vann BSV Bern, 31:30, í þriðju og síðustu viðureign liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni svissnesku A-deildarinnar í handknattleik á heimavelli í gær. Kadetten Schaffhausen leikur til úrslita við annaðhvort HC Kriens eða Pfadi Winterthur.
- Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði eitt mark og gaf tvær stoðsendingar í sex marka sigri Skara HF, 26:20, á Önnereds í undanúrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í gær. Skara HF hefur tvo vinninga gegn einum hjá Önnereds. Fjórði leikur liðanna fer fram í Skara á miðvikudaginn og takist heimaliðinu að vinna leikur það til úrslita um sænska meistaratitilinn annað árið í röð.
- Janus Daði Smárason lék í 21 mínútu og skoraði tvisvar í stórsigri Pick Szeged á NEKA, 42:17, á heimavelli í 24. umferð ungversku A-deildarinnar í gær. Pick Szeged er í öðru sæti deildarinnar, sjö stigum á eftir One Veszprém þegar tvær umferðir eru eftir.
- Tjörvi Týr Gíslason skoraði þrjú mörk fyrir HC Oppenweiler/Backnang þegar liðið tapaði fyrir VfL Potsdam, 35: 27, í 2. deild þýska handknattleiksins í gær. HC Oppenweiler/Backnang er neðst í deildinni og í raun fallið úr deildinni þrátt fyrir að fjórar umferðir séu eftir.
- Auglýsing -



