- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Verður Wille næsti þjálfari Óðins Þórs?

- Auglýsing -

Orðrómur er uppi um að Jonas Wille, fráfarandi þjálfari karlalandsliðs Noregs, taki í sumar við þjálfun svissneska meistaraliðsins Kadetten Schaffhausen sem Óðinn Þór Ríkharðsson landsliðsmaður leikur með.

Hrvoje Horvat hefur þjálfað Kadetten Schaffhausen frá 2023. Hann tók við af Aðalsteini Eyjólfssyni. Þrátt fyrir yfirburði í A-deildinni í Sviss þá varð árangur Kadetten í Evrópudeildinni á leiktíðinni viðunandi. Liðið féll úr leik eftir 16-liða úrslit.


Wille hefur einnig verið orðaður við þjálfarastarfið hjá danska úrvalsdeildarliðinu. Það þykir hins vegar ekki vera áhugaverður kostur um þessar mundir enda flest í kalda koli hjá félaginu eftir eintóm vonbrigði á leiktíðinni. HØJ er í hættu á að falla úr dönsku úrvalsdeildinni.

Wille hættir með norska landsliðið eftir umspilsleiki heimsmeistaramótsins upp úr miðjum þessum mánuði. Noregur mætir Tyrklandi í umspilinu. Ekki liggur fyrir hver tekur við af Wille. Børge Lund þjálfari Elverum er sterklega orðaður við stól landsliðsþjálfara.

Wille verður að taka pokann sinn hjá norska landsliðinu

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -