- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Aalborg staðfestir brottför Arons – flytur heim í sumar

Danska handknattleiksliðið Aalborg Håndbold staðfesti fyrir stundu að Aron Pálmarsson kveðji félagið við lok leiktíðar næsta vor. Kemur félagið þar með til móts við óskir hans um að vera leystur undan samningi sem eitt ár verður eftir af....

Olísdeild kvenna: Samantekt helstu tölfræðiþátta

Nú þegar hlé hefur verið gert á keppni í Olísdeild kvenna fram í janúar er ekki úr vegi að renna yfir nokkra tölfræðiþætti sem teknir hafa verið saman upp úr ýtarlegum tölfræðigrunni HBStatz. Þar kennir sannarlega ýmissa grasa. Þeir sem...

Molakaffi: Einar, Tinna, Ryde, Mahé, vináttuleikur í kuldanum, Nillson

Einar Sverrisson og Tinna Sigurrós Traustadóttir eru handknattleikskarl og handknattleikskona hjá ungmennafélaginu Selfoss. Þau voru tilnefnd í kjöri til íþróttafólks Selfoss fyrir yfirstandandi ár. Einar er einn traustasti leikmaður karlaliðs Selfoss og sá markahæsti. Tinna Sigurrós var m.a. markadrottning...

Íslendingar munu streyma til Svíþjóðar á HM

Útlit er fyrir að gríðarlegur áhugi verði fyrir íslenska landsliðinu í handknattleik karla á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð í næsta mánuði. Stefnir í að þúsundir Íslendinga streymi til Svíþjóðar til þess að standa á bak við íslenska landsliðið sem þykir...
- Auglýsing-

Hornamennirnir markahæstir í Noregi

Sigvaldi Björn Guðjónsson fór á kostum í kvöld og skoraði níu mörk í 11 skotum þegar Kolstad vann Haslum HK í Þrándheimi með níu marka mun, 40:31, í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Sigvaldi Björn skoraði ekki úr vítakasti að...

Skin og skúrir í danska bikarnum

Íslendingatríóið hjá Ribe-Esbjerg komst í kvöld í undanúrslit dönsku bikarkeppninnar í handknattleik eftir sigur á Skanderborg Aarhus á heimavelli í æsispennandi leik, 29:28. Hinsvegar féll Aalborg Håndbold úr leik eftir mikinn markaleik á heimavelli GOG, 41:39. Aron Pálmarsson leikur...

Viktor Gísli er mættur á milli stanganna á ný

Þau gleðitíðindi berast frá Frakklandi að landsliðsmarkvörðurinn í handknattleik Viktor Gísli Hallgrímsson hafi verið í liði Nantes í kvöld á heimavelli í frönsku 1. deildinni þegar liðsmenn PSG komu í heimsókn. Viktor Gísli meiddist öðru sinni á olnboga í...

Sætir sigrar og súr töp í þýsku bikarkeppninni

Gummersbach, SC Magdeburg og Rhein-Neckar Löwen, sem öll hafa íslenska handknattleiksmenn innan sinna vébanda, tryggðu sér í kvöld sæti í átta liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar þegar fjórar viðureignir 16-liða úrslita fór fram. Melsungen og Bergischer HC, sem Íslendingar eru einnig...
- Auglýsing-

Mál „tiltekins aðila“ skoðað nánar hjá aganefnd

Mál „tiltekins aðila“ á vegum handknattleiksliðs Harðar er til sérstakrar skoðunar þessa dagana samkvæmt því sem fram kemur í úrskurði aganefndar HSÍ í vikunni og birtur er á vef sambandsins. Ástæða fyrir skoðuninni er að aganefnd barst skýrsla frá dómurum...

Hulunni verður svift af á Þorláksmessu

Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla kynnir á föstudaginn æfingahóp landsliðsins fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Svíþjóð og Póllandi í frá 11. til 28. janúar. HSÍ boðaði í dag til blaðamannfundar í Minigarðunum á Þorláksmessu, á æfmælisdegi...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19141 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -