- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Afrekssjóður úthlutar nærri 85 milljónum til HSÍ

Handknattleikssamband Íslands fær nærri 84,8 milljónir úthlutaðar úr Afrekssjóði ÍSÍ fyrir árið 2024 en alls nema styrkir sjóðsins 512 milljónum króna eftir því fram kemur í frétt á heimasíðu Íþrótta- og Ólympíusambands Ísland. A-landslið kvenna tók þátt í lokakeppni heimsmeistaramótsins...

Frændurnir mætast í undanúrslitum í Lanxess Arena

Sannkallaður Íslendingaslagur verður í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar þegar frændurnir frá Selfossi, Elvar Örn Jónsson og Teitur Örn Einarsson, mætast með liðum sínum, MT Melsungen og Flensburg Handewitt. Dregið var í hádeginu. Arnar Freyr Arnarsson leikur einnig með MT Melsungen. Tvö...

Einar Baldvin íþróttakarl Gróttu – Andri þjálfari ársins

Handknattleiksmarkvörðurinn Einar Baldvin Baldvinsson var kjörinn íþróttakarl Gróttu fyrir árið 2023 og hlaut hann viðurkenningu sína í hófi sem félagið hélt á dögunum þar sem íþróttafólk félagsins, þjálfarar, stjórnarmenn og sjálfboðaliðar voru heiðraðir. Freyja Hannesdóttir, fimleikakona, er íþróttakona Gróttu...

Dagskráin: Bikarinn og Reykjavíkurslagur

Átta liða úrslit Poweradebikarkeppninnar, bikarkeppni HSÍ, hefjast í kvöld með þremur viðureignum í kvennaflokki. Fjórði og síðasti leikurinn í kvennaflokki fer fram annað kvöld. Átta liða úrslit í karlaflokki verða leikin á sunnudaginn og á miðvikudaginn eftir viku. Til viðbótar...
- Auglýsing-

Molakaffi: Vináttuleikir, Babić, Jönsson, Mathe

Þess er nú freistað að tryggja íslenska karlalandsliðinu í handknattleik tvo vináttulandsleiki upp úr miðjum mars þegar alþjóðleg vika landsliða stendur yfir. Vonir standa til þess að hægt verði að leika hér á landi en ef ekki mun landsliðið...

Breki Hrafn skrifar undir þriggja ára samning

Handknattleiksmarkvörðurinn Breki Hrafn Árnason hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við handknattleiksdeild Fram. Breki er einn allra efnilegasti markvörður landsins og hefur m.a. leikið með yngri landsliðunum á síðustu árum, síðast á HM 19 ára landsliða í Króatíu...

Eftir 11 sigurleiki tapaði Györ – barist um sæti í átta liða úrslitum

Tvær umferðir eru eftir af riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í handknattleik eftir leiki helgarinnar þar sem hæst bar að ungverska meistaraliðið Györ tapað í fyrsta sinn á leiktíðinni eftir 11 sigurleiki í röð. Christina Negau og samherjar í rúmenska meistaraliðinu...

Svavar og Sigurður verða á faraldsfæti á næstunni

Handknattleiksdómararnir Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson hafa verið valdir til þess að dæma tvær viðureignir í Evrópukeppni félagsliða á næstunni. Þeir verða í Hamri í Noregi á næstu sunnudag og halda uppi röð og reglu í viðureign...
- Auglýsing-

Partille-mótið tekur upp heitið heimsbikarmót

Partille Cup, alþjóðlega handknattleiksmót barna og unglinga, sem íslenska félagslið hafa verið dugleg að sækja í gegnum árin, hefur breytt um nafn og heitir nú Partille World Cup. Nýtt nafn á að endurspegla betur vægi mótsins á alþjóðlegum vettvangi. Á...

Myndskeið: Landslið Íslands og Færeyja – bestu minningar frá EM

Handknattleikssamband Evrópu hefur sett saman og gefið út myndskeið með nokkrum eftirminnilegum atvikum og leikjum frá nýliðnu Evrópumóti í handknattleik karla. Myndskeiðið sem er rúmlega átta mínútna langt tekur m.a. yfir ævintýralegan endasprett íslenska landsliðsins þegar það tryggði sér...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
18234 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -