Handknattleikssamband Evrópu hefur sett saman og gefið út myndskeið með nokkrum eftirminnilegum atvikum og leikjum frá nýliðnu Evrópumóti í handknattleik karla. Myndskeiðið sem er rúmlega átta mínútna langt tekur m.a. yfir ævintýralegan endasprett íslenska landsliðsins þegar það tryggði sér jafntefli við Serba, 27:27.
Einnig er á myndskeiðinu frábær lokakafli færeyska landsliðsins, þegar Færeyingar unnu sitt fyrsta stig í lokakeppni EM.
Til viðbótar er stórskemmtilegir kafla úr leik Georgíu sem vann Bosníu og um leið sinn fyrsta leik í lokakeppni EM.
Austurríkismenn koma einnig við sögu og svissneski handknattleiksmaðurinn Andy Schmid sem kvaddi svið leikmanna á EM með stórleik. Nikola Karabatic, Mikkel Hansen, Andreas Palicka, heimsmetsaðsókn á upphafsleik EM og í lokin þegar Frakkar tryggðu sér Evrópumeistaratitilinn.
Ógleymanlegar minningar frá EM 2024 er að finna á myndskeiðinu hér fyrir neðan.