- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

ÍBV mætir Madeira Andebol annað árið röð

ÍBV mætir Madeira Andebol SAD frá portúgölsku eyjunni Madeira annað ári í röð í 32-liða úrslitum Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik. Dregið var í morgun. Leikirnir eiga að fara fram 11. og 12. nóvember annars vegar og 18. og 19....

Molakaffi: 99 dagar, Emma, Axel, sektir

Í dag eru 99 dagar þangað til Evrópumót karla í handknattleik hefst í Þýskalandi. Haft var eftir Andreas Michelmann forseta þýska handknattleikssambandsins í fjölmiðlum í gær að um 250 þúsund miðar á leiki mótsins væru seldir af um 400...

Fyrstu stig ungmennaliðs Vals í höfn

Ungmennalið Vals vann Fjölni í fremur ójöfnum lokaleik 2. umferðar Grill 66-deildar kvenna í Origohöllinni í kvöld, 27:21, eftir að hafa verið átta mörkum yfir í hálfleik, 17:9. Þetta var fyrsti sigur Valsara í deildinni. Fjölnir er eitt fjögurra...

Stigunum var bróðurlega skipt í KA-heimilinu

Ungmennalið KA og Þór skildu með skiptan hlut í miklum baráttuleik í Grill 66-deild karla í handknattleik í KA-heimilinu í kvöld, 18:18. Þórsarar eru þar með komnir með þrjú stig eftir tvo fyrstu leiki sína. Ungmennalið KA vann sér...
- Auglýsing-

Arnar Birkir og Amo gefa ekki tommu eftir

Áfram halda nýliðar Amo að vinna sína leiki í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Á sama tíma þá leikur Arnar Birkir Hálfdánsson við hvern sinn fingur með liðinu en hann gekk til liðs við það í sumar. Arnar Birkir var markahæstur...

Riddararnir sóttu tvö stig í Garðinn – tvö rauð spjöld

Leikmenn Hvíta riddarans gerðu það gott í fyrsta leik sínum á Íslandsmótinu í handknattleik karla í kvöld þegar þeir sóttu Víðismenn heim í Garðinn og tóku tvö stig með sér heim í Mosfellsbæinn í öðrum leik 2. deildar karla....

Hefur undirbúning fyrir titilvörnina með nýjan samning upp á vasann

Norðmaðurinn Glenn Solberg hefur skrifað undir nýjan samning við sænska handknattleikssambandið um þjálfun karlalandsliðsins og ríkjandi Evrópumeistara. Samningurinn gildir fram yfir Evrópumótið 2026 sem haldið verður í grannríkjunum Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Solberg tók við þjálfun karlalandsliðs Svíþjóðar árið 2020...

Dregið á morgun – ÍBV verður í efri flokki

ÍBV verður í efri stykleikaflokki þegar dregið verður í 32-liða úrslita Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik í fyrramálið. Það kemur þó ekki í veg fyrir Eyjaliðið getur mætt sterkum liðum. M.a. liða sem eru í neðri styrkleikaflokki er BM Elche...
- Auglýsing-

Dagskráin: Þrír leikir fara fram í kvöld

Annarri umferð Grill 66-deilda karla og kvenna lýkur í kvöld með einum leik í hvorri deild. Einnig verður áfram haldið keppni í 2. deild karla en fyrsti leikur deildarinnar fór fram í gær. Leikir kvöldsins Grill 66-deild karla:KA-heimilið: KA U -...

ÍBV varð fyrir áfalli í Portúgal – Britney úr leik næstu mánuði

Bikarmeistarar ÍBV urðu fyrir áfalli á laugardaginn í síðari leiknum við portúgalska liðið Colegio de Gaia í Evrópubikarkeppninni í handknattleik. Átta mínútum fyrir leikslok sleit Britney Cots hásin á vinstri fæti. Reikna má með hálfs árs fjarveru hennar frá...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18942 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -