Strákarnir í U16 ára landsliðinu unnu stórsigur á jafnöldrum sínum í færeyska landsliðinu í vináttuleik í Giljanesi í Færeyum í dag, 31:19. Íslenska liðið réði lögum og lofum í síðari hálfleik eftir að meira jafnræði var með liðinu í...
Aalborg Håndbold varð í dag danskur meistari í handknattleik með naumum sigri á Fredericia HK, lærisveinum Guðmundur Þórðar Guðmundssonar, 27:26, í æsilega spennandi úrslitaleik í Álaborg. Mads Hoxer Hangaard skoraði sigurmarkið 40 sekúndum fyrir leikslok.
Áður en Hoxer skoraði hafði...
Axel Stefánsson og Kenneth Gabrielsen þjálfarar Storhamar voru kjörnir þjálfarar ársins í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik kvenna. Undir stjórn þeirra félaga hafnaði Storhamar í öðru sæti í deildinni og í úrslitakeppninni.
Stærsta afrek Axel og Gabrielsen var sigur Storhamar í...
Hannes Jón Jónsson og liðsmenn hans í Alpla Hard töpuðu með átta marka mun fyrir Linz í öðrum úrslitaleik liðanna um austurríska meistaratitilinn í handknattleik í gær, 36:28. Leikurinn fór fram í Linz. Liðin hafa einn vinning hvort og...
Afturelding hefur skrifað undir samninga við tvo færeyska handknattleiksmenn, Sveinur Ólafsson og Hallur Arason sem ganga til liðs við félagið í sumar. Sveinur lék síðast með landsmeisturunum H71 í Hoyvik en Hallur er frá Vestmanna.
Sveinur Ólafsson er 21 árs...
Þýska handknattleiksliðið SC Magdeburg varð í gærkvöld þýskur meistari í handknattleik. Meðal leikmanna liðsins er Selfyssingurinn Janus Daði Smárason sem nú verður landsmeistari í handknattleik í sjöunda skipti á síðustu 10 árum.
Stefán Arnason handknattleiksþjálfari hjá Aftureldingu bendir á þessa...
„Við stefndum á að verða Íslands- og deildarmeistarar en það var að sjálfsögðu ekkert sjálfgefið þótt liðið væri vel mannað. Við erum því mjög ánægðir og ég persónulega afar sáttur við hvað strákarnir voru tilbúnir að leggja hart að...
Handknattleikskonan Brynja Katrín Benediktsdóttir hefur ákveðið að kveðja Val og skrifað undir samning við Stjörnuna. Brynja Katrín er tvítug og lék sem lánsmaður hjá FH í Grill 66-deildinni á síðustu leiktíð. Skoraði hún 35 mörk í 13 leikjum.
Brynja Katrín...
Rúmenski handknattleiksmaðurinn og þjálfarinn, Ștefan Birtalan, lést á dögunum 75 ára gamall. Alþjóða handknattleikssambandið sagði frá andláti hans. Birtalan er ein mesta stórskytta handboltasögunnar og einn fremsti handknattleiksmaður sinnar samtíðar.
Birtalan varð heimsmeistari með rúmenska landsliðinu 1970 og 1974...
Arnór Þór Gunnarsson og lærisveinar hans í Bergischer HC halda í vonina um að halda sæti sínu í þýsku 1. deildinni í handknattleik eftir dramatískan baráttsigur á Füchse Berlin í Max Schmeling Halle í Berlin í kvöld, 30:29. Sigurmarkið...
Nóg verður að gera hjá yngri landsliðunum í handknattleik um helgina. Fjögur yngri landslið etja kappi við landslið Færeyja í vináttulandsleikjum. U-16 og U-18 ára landslið kvenna ásamt U-20 ára landsliði karla leika hér á landi á meðan U-16...
Lokahóf meistaraflokka Fram í handknattleik fór fram um síðustu helgi. Þar gerðu leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar félagsins sér glatt kvöld. Um leið voru veittar viðkenningar til einstaklinga fyrir leiktíðina.
Bestu leikmenn meistaraflokksliðanna voru valin Alfa Brá Hagalín Oddsdóttir og Rúnar...
„Ég er hrikalega stoltur yfir að hafa unnið titilinn með þessum snillingum í liðinu,“ sagði Einar Bragi Aðalsteinsson nýbakaður Íslandsmeistari með FH í samtali við handbolta.is í gær. Einar Bragi kveður FH-liðið í sumar eftir tveggja ára „þroskaferli“ eins...
Skiljanlega var kátt á hjalla þegar FH-ingar unnu Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla í 17. skipti í gærkvöld. FH lagði Aftureldingu í þrjú skipti í fjórum viðureignum úrslitarimmunnar. Smiðshöggið var rekið að Varmá með fjögurra marka sigri í gærkvöld, 31:27....
Sigvaldi Björn Guðjónsson fyrirliði Kolstad skoraði 10 mörk þegar liðið vann Elverum, 34:30, eftir tvíframlengdum oddaleik í úrslitakeppninni í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Þetta var önnur tvíframlengda viðureign liðanna í þremur úrslitaleikjum.
Kolstad vann þar með öll...