Dregið var í aðra umferð í Evrópubikarkeppni karla í handknattleik karla í morgun og voru nöfn þriggja íslenskra félagsliða í skálunum sem dregið var úr.
ÍBV, sem ennþá á eftir að leika við Holon HC frá Ísrael, mætir Donbas Donetsk...
Víkingar búa sig af kostgæfni undir þátttöku í Grill66-deild karla sem hefst síðar í þessum mánuði. Nýverið var liðið í vel lukkuðum viku æfingabúðum á Spáni eins og handbolti.is sagði frá. Eftir heimkomuna hafa Víkingar leikið þrjá æfingaleiki. Þeir...
Ómar Ingi Magnússon, leikmaður Þýskalandsmeistara SC Magdeburg, er einn sjö leikmanna sem Handknattleikssamband Evrópu (EHF) bendir áhorfendum að beina sjónum sínum að á keppnistímabilinu sem hefst eftir rúma viku.
Minnt er á að leit sé að þeirri vörn sem Ómar...
ÍR hefur fengið til sín Berglindi Björnsdóttur og Erlu Maríu Magnúsdóttur frá Fjölni/Fylki áður en átökin hefjst í Grill66-deild kvenna síðar í þessum mánuði.
Berglind er 22 ára miðjumaður sem getur leyst allar stöður fyrir utan. Hún er kvikur og...
Sunna Guðrún Pétursdóttir markvörður var ekki í leikmannahópi GC Amicitia Zürich þegar liðið tapaði fyrir Spono Eagles, 42:25, í fyrstu umferð svissnesku úrvalsdeildarinnar í gær. Sunna Guðrún tognaði á ökkla nokkrum dögum fyrir leik og varð að sitja yfir. Hún...
Jakob Lárusson mátti horfa upp á lið sitt, Kyndil, steinliggja með 16 marka mun fyrir H71 i meistarakeppninni í færeyska kvennahandboltanum í dag, 38:22. Meistarar H71 voru með sex marka forskot að loknum fyrri hálfleik, 18:12. Leikurinn fór fram...
Landsliðskonan og leikmaður Fram, Steinunn Björnsdóttir, var valin besti leikmaður Ragnarsmótsins í handknattleik sem lauk á Selfossi í gær. Eins og kom fram á handbolta.is í gær þá unnu Steinunn og samherjar öruggan sigur í öllum þremur leikjum mótsins...
Skarphéðinn Ívar Einarsson og Dagur Árni Heimisson hafa skrifað undir nýja tveggja ára samninga við handknattleiksdeild KA. Skarphéðinn er ný orðinn 17 ára og kom inn í meistaraflokkslið KA á síðustu leiktíð. Hann var í U18 ára landsliðinu sem...
Akureyringurinn Oddur Gretarsson átti stórleik í kvöld og skoraði 10 mörk þegar lið hans, Balingen-Weilstetten vann Ludwigshafen með eins marks mun í hörkuleik í 1. umferð þýsku 2. deildarinnar í handknattleik í kvöld, 34:33. Leikið var á heimavelli Ludwigshafen....
Þrefaldir meistarar síðasta keppnistímabils, Valur, mæta sterkir til leiks á nýju keppnistímabili ef marka má frammistöðu þeirra gegn KA í meistarakeppni HSÍ í Origohöllinni í dag. Valsmenn voru talsvert sterkari en KA-menn frá upphafi til enda og unnu með...
Fram vann stórsigur á Selfossi í síðasta leik Ragnarsmóts kvenna í handknattleik í Sethöllinni á Selfossi í dag, 37:22, og vann þar með mótið. Fram hafði betur í öllum þremur leikjum sínum í mótinu þrátt fyrir að vera ekki...
„Ástandið er bara nokkuð gott. Upp á síðkastið hef ég jafnt og þétt aukið álagið og í næstu viku má ég vonandi byrja að æfa með strákunum. Ég er orðinn nokkuð leiður á að æfa einn út í horni...
Hafþór Már Vignisson skoraði eitt mark þegar lið hans Empor Rostock steinlá í heimsókn til Tusem Essen, 26:15, í fyrstu umferð þýsku 2. deildarinnar í handknattleik í gærkvöld.
Sveinn Andri Sveinsson var í leikmannahópi Empor Rostock en kom lítið...
Fréttamiðillinn Handball-Planet tekur árlega saman lista yfir 100 verðmætustu eða áhugaverðustu félagaskiptin á leikmannamarkaði handknattleikskarla í Evrópu. Að vanda svikust starfsmenn fréttamiðilsins ekki um að taka saman lista vegna tímabilsins sem er að hefjast. Var hann birtur í morgun....
Nýliðar Olísdeildar karla í handknattleik, Hörður á Ísafirði, hafa samið við 21 árs gamlan brasilískan markvörð, Emannuel Augusto Evangelista. Standa vonir til þess að Brasilíumaðurinn verði klár í slaginn í Olísdeildinni þegar Hörður sækir Íslands- og bikarmeistara Vals heim...