- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Myndaveisla: KA – Haukar, 22:23

Haukar knúðu fram oddaleik í rimmu sinni við KA í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í gærkvöld með eins marks sigri, 23:22, í KA-heimilinu. Eftir tvo leiki er staðan jöfn, 52:52, eftir 30:29, sigur KA í fyrsta...

Molakaffi: Viktor Gísli, Aron, Arnór, Elliði Snær, Kjartan Þór, Arnór Máni, Jakob Ingi

Viktor Gísli Hallgrímsson er í úrvalsliði fyrstu umferðar úrslitakeppninnar í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Hann átti stórleik með GOG gegn Ribe Esbjerg í tveggja mark sigri GOG á laugardaginn, 28:26. Viktor Gisli varði 20 skot, 44% markvörslu, og var maðurinn...

FH-ingar fóru á kostum

FH-ingar fór á kostum í Sethöllinni á Selfossi í kvöld þegar þeir unnu afar sannfærandi sigur á liði Selfoss, 27:22. Þar með kemur til oddaleiks á milli liðanna á fimmtudagskvöldið í Kaplakrika. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. FH-liðið byrjaði...
- Auglýsing -

Haukar knúðu naumlega fram oddaleik

Haukum tókst að knýja fram oddaleik í rimmu sinni við KA í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik með eins marks sigri, 23:22, í KA-heimilinu í kvöld. Oddaleikurinn verður á Ásvöllum á miðvikudagskvöldið og hefst klukkan 19.30. Eftir...

Elvar Örn verður frá keppni næstu mánuði

Elvar Örn Jónsson landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður þýska 1. deildarliðsins MT Melsungen verður frá keppni næstu fimm mánuði vegna alvarlegra axlarmeiðsla sem hann varð fyrir í landsleik Íslands og Austurríki í umspili um HM-sæti í Bregenz 13. apríl. Melsungen...

Heldur norður í heimahagana á nýjan leik

Hornamaðurinn eldfljóti, Dagur Gautason, hefur ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélags síns, KA, eftir tveggja ára veru hjá Stjörnunni. Frá þessu er greint á heimasíðu KA, daginn eftir að Stjarnan heltist úr lestinni í átta liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn...
- Auglýsing -

Zecevic verður áfram hjá Stjörnunni

Góðar fréttir berast frá kvennaliði Stjörnunnar nokkrum dögum áður en úrslitakeppni Olísdeildar kvenna hefst. Svartfellski markvörðurinn Darija Zecevic hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við félagið. Þetta kemur fram í tilkynningu Stjörnunnar. Zecevic kom til Stjörnunnar á síðasta sumri...

ÍBV bætir við sig færeyskum unglingalandsliðsmanni

ÍBV samdi í gær við færeyskan vinstri hornamann Janus Dam Djurhuus fyrir næsta keppnistímabil. Djurhus sem kemur frá færeyska meistaraliðinu H71 sem varð bæði færeyskur meistari og bikarmeistari á keppnistímabilinu sem lauk á dögunum. Lék piltur stórt hlutverk í...

Framarar bestir í 2. deild karla

Ungmennalið Fram fagnaði sigri í 2. deild karla í handknattleik á föstudagskvöld eftir að hafa unnið ungmennalið Fjölnis, 35:31, í Dalhúsum. Framarar taka þar með sæti í Grill66-deild karla á næsta keppnistímabili en þeir féllu úr deildinni fyrir ári. Framliðið...
- Auglýsing -

Dagskráin: Hafnarfjarðarliðin eru með bakið upp við vegginn

Átta liða úrslit Olísdeildar karla í handknattleik karla halda áfram í kvöld með tveimur leikjum. KA fær Hauka í heimsókn í KA-heimilið og Selfoss tekur á móti FH. Leikmenn Hafnarfjarðarliðanna er komnir með bakið upp að veggnum, eins og...

Molakaffi: Janus Daði, Aron Dagur, Orri Freyr, Kurtović, Barcelona, Veszprém

Janus Daði Smárason skoraði tvö mörk og átti eina stoðsendingu þegar lið hans, Göppingen, vann Hannover-Burgdorf á heimavelli í gær, 31:25, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær.  Göppingen var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 15:13. Göppingen er...

Fingurbrotnaði í fagnaðarlátum – áfall í herbúðum KA

Færeyski landsliðsmarkvörðurinn Nicholas Satchwell leikur ekki fleiri leiki með KA á þessu keppnistímabili. Hann fingurbrotnaði illa eftir sigur KA á Haukum á Ásvöllum á föstudagskvöld, eftir því sem heimildir handbolta.is herma. Hlaut hann opið fingurbrot og er þar af...
- Auglýsing -

Valsmenn afgreiddu Framara

Ríkjandi Íslands,- bikar, - og deildarmeistarar Vals voru ekki í vandræðum með að tryggja sér sæti í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld. Valur vann öruggan sigur á Fram, 36:31, í Framhúsinu. Karlalið Fram hefur þar með leikið...

Eyjamenn taka sæti í undanúrslitum

Stjarnan er úr leik í úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik eftir að hafa tapað öðru sinni fyrir ÍBV í átta liða úrslitum í dag, 25:22. Leikurinn fór fram í TM-höllinni í Garðabæ. Stjörnumenn fóru illa að ráði sínu í leiknum....

Fjölnismenn mæta ÍR-ingum

Fjölnir mætir ÍR í úrslitum umspils um sæti í Olísdeild karla eftir að Fjölnisliðið vann Þór Akureyri öðru sinni í undanúrslitum í dag, 36:30. Leikið var í Höllinni á Akureyri. Fjölnismenn unnu fyrri leikinn, 28:24, á heimavelli á fimmtudaginn....
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -