- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

KA/Þór lætur kjurrt liggja

Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, segir í samtali við Vísir í dag að horfið hafi verið frá að fara lengra með kærumálið vegna draugamarksins í leik Stjörnunnar og KA/Þórs í Olísdeild kvenna. Var það ákveðið til að koma í veg...

Íslenska liðið klárt fyrir átökin í Tel Aviv

Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðþjálfari í handknattleik karla, hefur valið þá 16 leikmenn sem mæta Ísrael í undankeppni EM 2022 í Tel Aviv síðar í dag. Leikurinn hefst klukkan 17.30 og verður í beinni útsendingu á RÚV. Markverðir:Ágúst Elí Björgvinsson, KIF Kolding...

Aron rýfur 150 leikja múrinn – rúm 12 ár frá fyrsta landsleik

Aron Pálmarsson leikur í dag sinn 150. landsleik þegar íslenska landsliðið mætir ísraelska landsliðinu í undankeppni EM í Tel Aviv klukkan 17.30. Hann er leikjahæsti leikmaður íslenska hópsins sem valinn var til leikjanna þriggja sem fyrir dyrum standa næstu...
- Auglýsing -

Daníel Þór til Þýskalands

Daníel Þór Ingason, landsliðsmaður í handknattleik, flytur sig um set í sumar frá Danmörku til Þýskalands. Hann hefur samið við þýska 1. deildarliðið Balingen-Weilstetten en félagið greinir frá þessu í morgun. Þar með verður Daníel Þór liðsfélagi Odds Gretarssonar...

Dagskráin: Leikið á ný í Garðabæ – Grilldeildir -landsleikur

Handknattleikurinn fer á fulla ferð í kvöld þegar keppni hefst í þremur deildum eftir ríflega mánaðarhlé auk þess sem karlalandsliðið verður í eldlínunni í undankeppni EM. Ein viðureign verður í Olísdeild kvenna þar sem Stjarnan og KA/Þór mætast í...

Molakaffi: Jacobsen á sjúkralista, fleiri PCR-próf færri hraðpróf, Mamelund mætir til leiks

Nikolaj Jacobsen þjálfari heimsmeistara Danmerkur í handknattleik karla ferðast ekki með landsliðinu til Sviss þar sem Danir mæta heimamönnum í undankeppni EM annað kvöld. Jacobsen fór í aðgerð á hné fyrir nærri þremur vikum vegna gamalla íþróttameiðsla. Hann segist...
- Auglýsing -

Áhorfendur verða á leiknum í Tel Aviv

Reikna má með að nokkur hundruð áhorfendur verði á áhorfendapöllunum í íþróttahöllinni í Tel Aviv á morgun þegar íslenska landsliðið mætir Ísraelsmönnum í undankeppni Evrópumótsins. Verður það í fyrsta sinn síðan íslenska landsliðið lék á EM í Svíþjóð í...

Andstæðingur Íslands á morgun vann í kvöld

Ísraelsmenn unnu sinni fyrsta leik í undankeppni EM í handknattleik karla þegar þeir lögðu Litáa, 34:28, í Tel Aviv í kvöld en þjóðirnar eru með Íslandi og Portúgal í riðli. Íslenska landsliðið mætir ísraelska landsliðinu í Tel Aviv klukkan...

Fámennt á einu æfingunni í Tel Aviv – myndasyrpa

Hluti af íslenska landsliðshópnum er kominn til Tel Aviv þar sem hann mætir landsliði Ísraels í undankeppni EM karla síðdegis á morgun. Þeir sem mættir eru æfðu í keppnishöllinni í hádeginu en ljóst er að allur íslenski hópurinn nær...
- Auglýsing -

Þúsund áhorfendur í Þórshöfn

Kórónuveiran hefur ekki gert vart við sig í Færeyjum síðan í lok janúar og mun færeyska karlalandsliðið njóta þess þegar það tekur á móti landsliði Tékklands á föstudaginn og rússneska landsliðinu á sunnudag í undankeppni Evrópumóts karla. Landsliðið fær...

Talsvert púsluspil að skipuleggja Ísraelsferð

Það hefur kostað talsverða vinnu og heilabrot að koma íslenska landsliðinu, þjálfurum og aðstoðarmönnum til Tel Aviv í Ísrael þar sem landslið Ísraels og Íslands mætast í undankeppni EM karla annað kvöld klukkan 17.30. Fjórir úr hópnum fóru frá Íslandi...

Ekkert meira með á tímabilinu

Ásgeir Snær Vignisson leikur ekkert meira með ÍBV í Olísdeildinni á þessu keppnistímabili. Hann hefur ekkert verið með ÍBV um skeið eftir að hafa komið til leiks á ný í lok janúar eftir að hafa farið úr axlarlið í...
- Auglýsing -

Sonur Axels gengur til liðs við Viking

Magnús Orri Axelsson, tvítugur handknattleiksmaður sem er af íslensku bergi brotinn, hefur samið við Viking í Stavangri til næstu þriggja ára. Magnús Orri kemur til Viking frá norska meistaraliðinu Elverum þar sem hann hefur leikið með varaliði félagsins. Frá þessu...

Handboltinn okkar: Haukar með yfirburði – Vanmat fyrir norðan? – Næstu leikir

Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust niður í hljóðverið sitt og tóku upp sinn 50. þátt en að þessu sinni ræddu þeir um 16.umferðina í Olísdeild karla. Hæst bar í þessari umferð óvæntur sigur Þórs á Val. Þeir félagar...

Lebedevs heldur tryggð við Hörð

Roland Lebedevs, markvörður, hefur skrifaði undir nýjan þriggja ára samning við Handknattleiksdeild Harðar á Ísafirði. Lebedevs gekk til liðs við Hörð á miðju síðasta keppnistímabili og hefur svo sannarlega staðið fyrir sínu. Lebedevs er þriðji leikmaður Harðar sem skrifar undir...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -