Íslenska landsliðið í handknattleik karla, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, leikur við danska landsliðið í undanúrslitum Evrópumótsins í Podgorica á morgun. Ungverjar og Svíar eigast við í hinni viðureign undanúrslita.
Viðureign Íslands og Danmerkur hefst klukkan 15 að...
„Við erum svo sannarlega í sjöunda himni með að vera komnir í fjögurra liða úrslit og eiga tækifæri til að gera betur,“ sagði Heimir Ríkarðsson annar þjálfara U18 ára landsliðs karla í handknattleik í samtali við handbolta.is í dag...
Stúlkurnar í U18 ára landsliðinu í handknattleik hafa nýtt daginn vel með þjálfarateymi til þess að búa sig undir næstu viðureign á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Chuzhou í Kína. Klukkan 6 í fyrramálið að íslenskum tíma mæta þær þýska...
Íslenska landsliðið er komið í undanúrslit á Evrópumóti 18 ára landsliða karla í handknattleik í Podgorica í Svartfjallalandi. Með sigri á norska landsliðinu í dag var sæti í undanúrslitum innsiglað, 31:25. Íslensku piltarnir leika á morgun í undanúrslitum en...
Aðeins eru rétt rúmar þrjár vikur þangað til keppni hefst í Olísdeild kvenna í handknattleik og undirbúningur liðanna hafinn fyrir nokkru af miklum krafti. Íslandsmeistarar Vals fara til Purto De La Cruz á Tenerife í dag í vikulangar æfingabúðir....
„Okkar markmið er aðeins eitt og það er sigur á Norðmönnum og ná sæti í undanúrslitum,“ sagði Heimir Ríkarðsson annar þjálfari U18 ára landsliðs karla í samtali við handbolti.is í gærkvöld.Klukkan 12.30 í dag hefst síðasta viðureign íslenska landsliðsins...
Sífellt betri árangur Gummersbach undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar hefur að sama skapi aukið til muna áhuga fyrir árskortum á heimaleiki liðsins. Í gær var tikynnt að þegar hafi rétt rúmlega 3.000 ársmiðar verðið seldir, um 1.000 fleiri en...
Til stendur að flauta til leiks í Grill 66-deild kvenna sunnudaginn 15. september samkvæmt leikjadagskrá sem birt hefur verið á vef HSÍ. Tíu lið eru skráð til leiks: Afturelding, Berserkir, FH, Fjölnir, Fram2, Haukar2, HK, KA/Þór, Valur2 og Víkingur.
Sunnudagar...
Fyrir utan að taka þátt í beinum undirbúningi fyrir viðureignina við Noreg í þriðju og síðustu umferð riðlakeppni átta liða úrslita Evrópumóts 18 ára landsliða í dag þá tóku fimm leikmenn íslenska landsliðsins þátt í verkefni á vegum Handknattleikssambands...
Handknattleiksdeild Gróttu eftir þjálfurum á yngstu flokka félagsins. Æfingar flokkanna hefjast fljótlega að loknum skóla hjá krökkunum.
Hæfniskröfur:
Brennandi áhugi á að vinna með börnum
Góðir samskiptahæfileikar
Reynsla af handknattleiksþjálfun er kostur
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í lok ágúst.
Nánari upplýsingar og umsóknir...
„Því miður þá var fyrsti leikur okkar erfiður gegn sterku liði Tékklands. Við byrjuðum illa og höfnuðum þremur til fjórum mörkum undir strax á fyrstu mínútum auk þess sem við fengum snemma á okkur tvo brottrekstra. Við áttum erfitt...
Handknattleiksmaðurinn Ólafur Brim Stefánsson er kominn til Slóvakíu og þar hann hefur samið við efstudeildarliðið MSK Povazska Bystrica til eins árs. Ólafur var á síðasta tímabil í Kúveit.
Var ekki til setunnar boðið
„Ég skrifaði undir samkomulag við félagið á sunnudaginn....
Ásbjörn Friðriksson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild FH um eitt ár. Auk þess að leika með liði Íslandsmeistaranna verður hann áfram aðstoðarþjálfari liðsins eins og undanfarin ár.
„Ásbjörn hefur verið algjör burðarás og mikill leiðtogi í liði FH frá...
Íslenska landsliðið tapaði með 11 marka mun, 28:17, fyrir landsliði Tékklands í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramóti 18 ára landsliða kvenna í Chuzhou í Kína í morgun að íslenskum tíma. Sviðskrekkur var í íslensku stúlkunum í fyrri hálfleik og...
Hér fyrir neðan er beint streymi frá viðureign Íslands og Tékklands í fyrstu umferð heimsmeistaramóts 18 ára landsliða kvenna í handknattleik í Chuzhou í Kína. Leikurinn hefst klukkan 8 og er í 1. umferð mótsins.
https://www.youtube.com/watch?v=mvoTmaxurZU