Arnar Pétursson landsliðsþjálfari í handknattleik kvenna hefur gert eina breytingu á landsliðinu sem mætir Færeyingum í dag í undankeppni Evrópumótsins frá leiknum við Lúxemborg á miðvikudagskvöld á Ásvöllum.
Þórey Anna Ásgeirsdóttir leikmaður Vals kemur inn í liðið í stað...
„Þetta er tölvuvert sterkara lið en það sem við lékum við á miðvikdaginn. Hinsvegar erum við betri en Færeyingar og eigum klárlega að vinna leikinn. Ef við leikum almennilega þá eigum við ekki að hafa of miklar áhyggjur af...
Sjötti þáttur Kvennkastsins, hlaðvarp, er kominn í loftið beint frá Færeyjum og fóru Jói og Gunnar Valur yfir landsleikinn sem fram fer í dag hjá stelpunum okkar og mátu möguleika Íslands á sigri.
Þeir fóru einnig yfir liðin og...
„Við erum spenntar að mæta þeim og reiknum með hörkuleik. Þekkjum ágætlega til þeirra eftir að hafa leikið tvo æfingaleiki við þær úti fyrir ári síðan og skoðað upptökur með síðasta leik þeirra sem var við Svía á fimmtudaginn,"...
Afturelding mætir norska liðinu Nærbø í Sparebanken Vest Arena í Nærbø, liðlega sjö þúsund manna bæ í Rogalandi, ekki svo fjarri Stavangri klukkan 14.30 í dag.
Um er að ræða fyrri viðureign liðanna. Sú síðari fer fram að Varmá...
Róbert Sigurðarson og samherjar í Drammen halda sigurgöngu sinni áfram í norsku úrvalsdeildinni. Í gær sóttu þeir Bergen heim og unnu örugglega, 40:35. Róbert skoraði ekki mark en lék að vanda með í vörninni. Drammen hefur 13 stig eftir...
„Við erum á leiðinni í allt öðruvísi leik gegn Færeyingum en á móti Lúxemborg á miðvikudaginn. Nú verður um mjög krefjandi leik að ræða fyrir okkur," segir Sandra Erlingsdóttir landsliðskona í handknattleik í samtali við handbolta.is um væntanlega...
Rúnar Sigtryggsson og lærisveinar hans í SC DHfK Leipzig gerðu sér lítið fyrir og unnu meistara THW Kiel í þýsku 1. deildinni í handknattleik, 35:34, á heimavelli. Þetta var fjórða tap THW Kiel í deildinni á leiktíðinni og nú...
FH-ingar standa höllum fæti eftir jafntefli á heimavelli í kvöld, 34:34, í Kaplakrika í fyrri viðureigninni við RK Partizan frá Serbíu í 32-liða úrslitum Evrópubikarkeppninnar í handknattleik karla. Uros Kojadinovic jafnaði metin fyrir RK Partizan þegar fimm sekúndur voru...
Þór komst upp að hlið Fjölnis í efsta sæti Grill 66-deildar karla í handknattleik í dag með eins marks sigri á ungmennaliði HK, 28:27, í Kórnum. HK skoraði tvö síðustu mörk leiksins en Þór var marki yfir í hálfleik,...
Valur hafði betur í fyrri viðureign sinni við Põlva Serveti í 32-liða úrslitum Evrópubikarkeppninnar í handknattleik karla í kvöld, 32:29, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 17:12. Leikurinn fór fram í Põlva í Eistlandi....
„Þetta var agaður og góður leikur hjá okkur,“ sagði Magnús Stefánsson þjálfari ÍBV þegar handbolti.is sló á þráðinn til hans í dag eftir að ÍBV vann HB Red Boys Differdange, 34:30, í fyrri viðureign liðanna í 32-liða úrslitum Evrópubikarkeppni...
Kvennalandsliðið í handknattleik er komið til Þórshafnar í Færeyjum þar sem liðið mætir færeyska landsliðinu í 2. umferð undankeppni Evrópumótsins í Höllinni á Hálsi á morgun klukkan 14. Flogið var frá Reykjavíkurflugvelli rétt fyrir hádegið í morgun með leiguflugvél...
Mikið verður um dýrðir í Kaplakrika af þessu tilefni auk þess sem um er að ræða 99. leika karlaliðs FH í Evrópukeppni í handknattleik. Slegið verður upp veislu í Kaplakrika eins og FH-ingum einum er lagið. Gott er mæta...
Valsmenn eru komnir til Põlva í Eistlandi þar sem þeir leika um helgina í tvígang við heimaliðið, Põlva Serveti í annarri umferð, 32-liða úrslit, Evrópubikarkeppni karla í handknattleik.
Fyrri leikur Vals og Põlva Serveti hefst í Mesikäpa Hall í Põlva...