Kvennalið ÍBV í handknattleik heldur áfram að styrkjast fyrir átökin á næsta keppnistímabili. Í dag var greint frá því að Ásdís Guðmundsdóttir hafi samið við ÍBV. Ásdís lék með Skara HF í Svíþjóð fyrri hluta síðasta keppnistímabils en flutti...
Íslenska landsliðið í handknattleik karla, skipað leikmönnum 21 árs og yngri er komið í átta liða úrslit á heimsmeistaramótinu. Piltarnir unnu egypska landsliðið í síðari leiknum í milliriðlakeppni mótsins í dag, 29:28, í dæmalausum handboltaleik. Sigurinn tryggði íslenska liðinu...
Hér fyrir neðan er hlekkur á beina útsendingu frá leik Íslands og Egyptalands í milliriðlakeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik karla skipað leikmönnum 21 árs og yngri. Flautað verður til leiks klukkan 14.30.
https://www.youtube.com/watch?v=KSmp7-mceJw
„Við höfum unnið fjóra leiki á mótinu til þessa og markmiðið fyrir leikinn við Egypta er skýrt, við ætlum okkur að vinna fimmta leikin. Annað kemst ekki að. Einbeittur hugur ríkir hjá okkur öllum að ná toppleik,“ sagði...
Handknattleiksþjálfarinn Slavko Helgi Bambir lést í Zagreb í Króatíu 13. júní eftir veikindi á 84. aldursári.
Bambir, eins og hann var yfirleitt kallaður af mörgum vinum sínum hér á landi, fæddist í Čitluk í Bosníu og Herzegóvínu 1....
Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði ótrúlegt mark í sigurleik íslenska landsliðsins í handknattleik á gríska landsliðinu á heimsmeistaramóti 21 árs landsliða í Aþenu í dag. Hann vann boltann í vörninni og náði honum út við hliðarlínu á vallarhelmingi íslenska landsliðsins....
Færeyjar, Króatía, Portúgal og Þýskaland hafa tryggt sér sæti í átta liða úrslitum heimsmeistaramóts karla í handknattleik, skipað leikmönnum 21 árs og yngri, þegar fyrri hluta milliriðlakeppni mótsins er lokið. Lið sex þjóða horfa löngunaraugum á þau fjögur sæti...
„Þetta var svo sannarlega ekki okkar besti leikur en við unnum og það skiptir öllu máli þegar upp er staðið. Við vorum lengi í gang,“ sagði Andri Már Rúnarsson einn leikmanna U21 árs landsliðsins í handknattleik í samtali við...
Færeyska landsliðið í handknattleik karla, skipað leikmönnum 21 árs og yngri, heldur sigurgöngu sinni áfram á heimsmeistaramótinu. Í dag lögðu færeysku piltarnir þá brasilísku, 33:27, og tryggðu sér um leið sæti í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins sem er stórkostlegt...
Íslenska landsliðið vann svo sannarlega vinnusigur á gríska landsliðinu í fyrri viðureign sinni í millriðlakeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik karla, skipað leikmönnum 21 árs og yngri í Aþenu í dag. Lokatölur, 29:28, eftir æsilega spennandi lokamínútur. Um tíma blés þó...
Hér fyrir neðan er streymi á beina útsendingu frá leik Íslands og Grikklands í fyrstu umferð milliriðlakeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik karla skipað leikmönnum 21 árs og yngri. Flautað verður til leiks klukkan 14.30.
https://www.youtube.com/watch?v=WJ4A3tC3Pf4
Landsliðsmaðurinn í handknattleik, Stiven Tobar Valencia, hefur gengið til liðs við portúgalska handknattleiksliðið Benfica í Lissabon. Benfica tilkynnti þetta í morgun en nokkrar vikur eru liðnar síðan Stiven fór til Lissabon og skrifaði undir samninginn sem er til eins...
Þegar á heildina er litið, aftur til síðustu 10 mánaða þá var keppnistímabilið frábært hjá Gísla Þorgeiri Kristjánssyni þrátt fyrir axlarmeiðslin alvarlegu í undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar um síðustu helgi. Hann náði að leika allt keppnistímabilið, 31 af 34 leikjum Magdeburg...
Frank Birkefeld fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóða handknattleikssambandsins, IHF, lést á fimmtudaginn á 83. aldursári. Birkefeld var framkvæmdastjóri þýska handknattleikssambandsins frá 1973 til 1991. Birkefeld var ráðinn framkvæmdastjóri IHF árið 1995 og var við störf í 12 ár uns hann kaus...
„Mér líst bara mjög vel á næsta leik gegn Grikkjum sem eru með hörkulið Þeir stóðu lengi vel í Egyptum á föstudaginn,“ sagði Kristófer Máni Jónasson leikmaður U21 árs landsliðs karla í samtali við handbolta.is spurður út í viðureignina...