Díana Dögg Magnúsdóttir, landsliðskona í handknattleik, fór meidd af leikvelli í síðari hálfleik í kvöld í leik með liði sínu, BSV Sachsen Zwickau í þýsku 1. deildinni í átta marka tapleik fyrir Thüringer HC, 32:24.
„Ég féll við og...
Lið Vals og Stjörnunnar eru áfram ósigruð í Olísdeild kvenna í handknattleik eftir að hvort þeirra hefur leikið þrisvar sinnum. Valur vann Fram, 27:22, í Origohöllinni í kvöld en Stjarnan vann KA/Þór með 11 marka mun í TM-höllinni í...
Brasilíska handknattleikskonan Nathalia Soares Baliana hefur samið við KA/Þór og fengið leikheimild hjá HSÍ, eftir því sem fram kemur á félagaskiptavef HSÍ. Reikna má með að Baliana gangi rakleitt inn í leikmannahóp KA/Þórs og verði hugsanlega með gegn Stjörnunni...
Króatar verða gestgjafar heimsmeistaramóts karla í handknattleik, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, dagana 2. til 13. ágúst á næsta ári.
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið með að huga að undirbúningi íslenska landsliðsins sem verður á...
Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur gefið út styrkleikaflokkana sem dregið verður úr í fyrramálið fyrir riðlakeppni Evrópudeildarinnar í karlaflokki. Íslands- og bikarmeistarar Vals eru í þriðja flokki af sex.
Liðin sem hlupu yfir undankeppnina eru í þremur efstu flokkunum en liðin...
Þriðja umferð Olísdeildar kvenna hefst í kvöld með tveimur hörkuleikjum. Tíu dagar eru liðnir síðan síðast var leikið í deildinni. Landsliðið átti sviðið í síðustu viku. Þrjár umferðir verða leiknar á næstu tveimur vikum áður en hlé verður...
Norska handknattleiksstjarnan Sander Sagosen gerir sér ennþá góðar vonir um að leika með norska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í handknattleik sem fram fer í janúar í Póllandi og Svíþjóð. Sagosen meiddist illa á ökkla undir lok keppnistímabilsins og hefur síðan...
Eftir að undankeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik lauk í kvöld liggja fyrir nöfn liðanna 24 sem verða í skálunum sem dregið verður úr í riðlakeppni deildarinnar á fimmtudagsmorgun.
Dregið verður í fjóra riðla með sex liðum í hverjum. Reikna má með...
Handknattleikskonan Jóhanna Margrét Sigurðardóttir hefur söðlað um og gengið til liðs við Skara HF og verður þar með þriðji Íslendingurinn í herbúðum liðsins.
Jóhanna Margrét gekk til liðs við Önnereds frá HK í sumar en festi ekki rætur og...
Handbolti.is heldur skrá yfir helstu félagaskipti meðal handknattleiksfólks sem greint hefur verið frá á síðustu mánuðum og vikum, jafnt innan lands sem utan.
Hér fyrir neðan er það sem hæst ber í félagaskiptum á meðal handknattleikskvenna og félög hafa staðfest...
Glatt var á hjalla þegar flautað var til leiksloka í Thansen-Arena í Fredericia í kvöld þegar lið heimamanna vann SønderjyskE, 34:32, í hörkuspennandi leik að viðstöddum 1.965 áhorfendum í sjöundu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld. Leikmenn Fredericia...
Janus Daði Smárason, Sigvaldi Björn Guðjónsson og samherjar í norska liðinu Kolstad taka ekki sæti í Evrópudeildinni í handknattleik eftir að Kolstad tapaði fyrir Bidasoa Irun í vítakeppni í síðari viðureign liðanna í Þrándheimi í kvöld.
Kolstad vann í...
Einar Jónsson þjálfari karlaliðs Fram í handknattleik var í dag úrskurðaður í eins leiks bann af aganefnd HSÍ vegna ummæla sinna í samtali við Stöð2/Vísir að lokinni viðureign FH og Fram í Olísdeild karla á síðasta fimmtudag.
Ummælin sem um...
Hulda Bryndís Tryggvadóttir leikur ekki meira með KA/Þór á keppnistímabilinu sem er nýlega hafið. Hún gengur með sitt fyrsta barn og er þar með komin í fæðingarorlof frá handboltanum.
Hulda Bryndís tók þátt í tveimur fyrstu leikjum KA/Þórs í...
Andrea Jacobsen landsliðskona í handknattleik segir það hafa verið góða tilbreytingu að ganga til liðs við EH Aalborg í Danmörku eftir fjögurra ára veru hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Kristianstad. Hollt sé að takast á við nýjar áskoranir með öðrum liðsfélögum,...