- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Molakaffi: Sigurður og Svavar, Norðberg, Jóhann, Mørk og félagar, Andersson, Óman

Sigurður Hjörtur Þrastarson og Svavar Ólafur Pétursson dæma viðureign Svartfjallalands og Póllands á Evrópumóti 18 ára landsliða í Podgorica í Svartfjallalandi í dag. Þeir dæmdu viðureign Ungverjalands og Portúgals á mótinu í gær. Ungverjar unnu með eins marks mun,...

HMU18: Róum saman að markinu sem einn maður

Ágúst Þór Jóhannsson og Árni Stefán Guðjónsson, þjálfarar U18 ára landsliðs kvenna, sátu kófsveittir í allan dag yfir undirbúningi fyrir lokaleik íslenska landsliðsins á heimsmeistaramótinu sem hefst klukkan 9.45 í fyrramálið að íslenskum tíma. Þá mætir íslenska landsliðið egypska...

EMU18: Einn af þeim þar sem allt gekk upp í lokin

„Þetta var einn af þeim leikjum þar sem allt gekk upp í lokin sem gerir sigurinn fyrir alla eftirminnilegri,“ sagði Heimir Ríkarðsson annar af þjálfurum U18 ára landsliðs karla þegar handbolti.is sló á þráðinn til Heimis eftir ævintýralegan sigur...
- Auglýsing -

Gunnar Dan sleit krossband – annar línumaður Hauka úr leik

Línu- og varnarmaðurinn öflugi hjá Haukum, Gunnar Dan Hlynsson, varð fyrirr því óláni að slíta krossband á hægra hné á æfingu í síðustu viku. Þar af leiðandi leikur hann ekkert með Haukum næsta árið. Gunnar Dan staðfesti tíðindin slæmu...

EMU18: Færeyingar flugu áfram – staðan í riðlunum

Færeyingar gerðu það heldur betur gott á EM U18 ára landsliða í handknattleik karla í Svartfjallalandi í dag þegar þeir unnu Serba, 29:24, í fyrstu umferð riðlakeppni liðanna í neðri hluta mótsins. Þar með er ljóst að Færeyingar verða...

EMU18: Kjartan Þór skaut Íslandi inn á tvö næstu stórmót

Kjartan Þór Júlíusson tryggði U19 ára landsliðinu sigur á Svartfellingum, 30:29, þegar hann skoraði sigurmarkið átta sekúndum fyrir leikslok í viðureign Íslands og Svartfjalllands á Evrópumótinu í Podgorica í Svartfjallalandi í dag. Sigurinn var afar mikilvægur því með honum er...
- Auglýsing -

Ásdís leikur í sænsku úrvalsdeildinni

Handknattleikskonan Ásdís Guðmundsdóttir hefur samið við sænska úrvalsdeildarliðið Skara HF. Hún fylgir þar með í kjölfar samherja síns hjá KA/Þór, Aldísar Ástu Heimisdóttur, sem fyrr í sumar samdi við sama félag. Frá þessu greinir Vikudagur á Akureyri í morgun. Samningur...

EMU18: Ætlum okkur sigur í fyrsta leik

„Okkar markmið er að tryggja okkur sæti á HM á næsta ári og komast inn á EM eftir tvö ár. Til þess að ná því verðum við helst að vinna að minnsta kosti einn leik í milliriðlakeppninni og best...

Molakaffi: Breki Hrafn, Hansen, Amega

Breki Hrafn Árnason markvörður U18 ára landsliðsins í handknattleik er í þriðja sæti á lista yfir þá markverðir sem hafa varið hlutfallslega flest skot á Evrópumótinu sem stendur yfir í Podgorica í Svartfjallalandi. Breki Hrafn hefur varið 36 skot...
- Auglýsing -

EMU18: Unnu í bráðabana á sögum úr Andabæ á japönsku – myndir

Piltarnir í U18 ára landsliði í handknattleik sem taka þátt í Evrópumeistaramótinu í Podgorica í Svartfjallalandi þessa dagana reyndu með sér í spurningakeppni í kvöld til að skerpa hugann fyrir átökin við Svartfellinga í milliriðlakeppni EM á morgun. Þema spurningakeppninnar...

HMU18: Mæta Egyptum á miðvikudagsmorgun

U18 ára landslið Íslands mætir landsliði Egyptalands í leiknum um 7. sætið á heimsmeistaramótinu í Skopje í Norður Makedóníu á miðvikudaginn. Það var staðfest í kvöld eftir að lið Egypta tapaði naumlega fyrir landsliði Svíþjóðar, 30:27, í krossspili um...

HMU18: Stelpurnar eru í stórsókn

„Ég er gríðarlega ánægður með liðið. Að vera í leik við Frakka þrátt fyrir að vera með lemstrað lið, alltént í síðari hálfleik undirstrikar í hversu mikilli sókn stelpurnar eru. Ekki má gleyma því að andstæðingurinn er einn sá...
- Auglýsing -

Tveir Fjölnismenn fara til Færeyja

Tveir handknattleiksmenn úr Fjölni eru á leiðinni til Færeyja þar sem þeir ætla að leika í úrvalsdeildinni á næsta keppnistímabili. Þetta hefur handbolti.is samkvæmt heimildum. Um er að ræða Egil Má Hjartarson og línumanninn sterka Victor Mána Matthíasson. Eftir því...

HMU18: Ísland leikur um sjöunda sæti á HM

U18 ára landsliðið í handknattleik kvenna leikur um 7. sætið á heimsmeistaramótinu í handknattleik á miðvikudaginn við annað hvort Egypta eða Svía. Þetta liggur fyrir eftir að íslenska liðið tapaði fyrir Frökkum með þriggja marka mun, 32:29, í krossspili...

HMU18: Ísland – Frakkland – Streymi

Ísland og Frakkland mætast í krossspili um fimmta til áttunda sætið á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik, 18 ára og yngri, í Jane Sandanski íþróttahöllinni í Skopje í Norður Makedóníu kl. 16.15. Hér fyrir neðan er hægt að tengjast streymi...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -